Gengið hægt en vel
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið hæg í morgun en lítið hefur verið um óhöpp, þrátt fyrir mikinn snjó og hálku, að sögn lögreglu. Þá bendir lögreglan á að nú á ellefta tímanum sé gert ráð fyrir að dimm él gangi yfir höfuðborgarsvæðið.
Gert sé ráð fyrir að þau gangi yfir á um tveimur klukkustundum.
„Það er búið að ganga hægt en vel,“ segir Rúnar Sigurpálsson, varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Lítið hafi verið um óhöpp.
Spurður út í moksturinn segir hann: „Okkur finnst ekki eins vel skafið og oft áður, en þetta er eiginlega fyrsti snjórinn í nokkuð mörg ár sem eitthvað kveður að.“
Rúnar hvetur alla ökumenn til að hreinsa vel af bílunum sínum áður en
þeir leggja af stað út í umferðina. Sumir hreinsi t.d. illa af rúðunum
og sjái þar af leiðandi illa út.
Þá segir hann að enn sjáist margir í umferðinni sem aki um á sumardekkjum. „Þeir sem eru mjög illa dekkjaðir ættu bara ekkert að fara af stað,“ segir hann.
Rúnar hvetur jafnframt alla ökumenn til að láta fjarlægja bílana sína verði þeir stopp. Ökumenn sjái sjálfir um að hringja í dráttarbíl.
Bílar sem séu skildir eftir geti skapað hættu. Sjáist þeir illa fyrir snjó geti þeir jafnvel orðið fyrir snjóruðningstækjum eða öðrum bílum. Rúnar segir að þetta séu ekki mörg tilfelli. „En það eru alltaf í umferðinni þessi tilfelli sem búa til vandræði,“ segir Rúnar og hvetur menn til að beita skynseminni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 24. desember 2010, Innlent Sýni biðlund í kirkjugörðunum
- Þriðjudagur, 22. nóvember 2011, Innlent Tími vetrardekkjanna kominn
- Fimmtudagur, 17. mars 2011, Innlent Fjöldi árekstra í hálkunni
- Miðvikudagur, 7. mars 2012, Innlent Ökumenn beðnir að aka varlega
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Mikil hálka í höfuðborginni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































