Innlent
| mbl
| 9.3.2011
| 11:32
Stofnuðu félag um Vaðlaheiðargöng
Frá vinstri: Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Kristján Möller fyrrv. samgönguráðherra og Pétur Jónasson formaður stjórnar Greiðrar leiðar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Hlutafélagið hefur það að markmiði að standa að gerð jarðganga undir Vaðlaheiði ásamt vegalagningu að þeim auk annars nauðsynlegs undirbúnings. Samkvæmt lögum um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir sem Alþingi samþykkti 16. júní 2010, er ráðherra einnig heimilt að fela hlutafélaginu að annast rekstur og viðhald ganganna að byggingu lokinni.
Stjórn Vaðlaheiðarganga hf. er í upphafi skipuð þremur mönnum og jafnmörgum til vara, þeim verður síðan fjölgað í fimm. Stjórnin skal vinna að byggingu Vaðlaheiðarganga í samráði og samvinnu við helstu hagsmunaaðila verkefnisins. Félaginu er heimilt að innheimta gjald fyrir notkun gagnanna og skal það standa undir kostnaði við undirbúning og framkvæmd auk eftirlits og kostnaðar við álagningu og innheimtu gjalda.
Stjórnarmenn voru skipuð þau Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, Kristján L. Möller, Pétur Þór Jónasson og til vara Huginn Freyr Þorsteinsson, Sigrún Björk Jakobsdóttir og Halldór Jóhannsson.
Vaðlaheiðargöng verða 7,5 km löng með vegskálum beggja vegna. Lengd vegskála 280 m. Þversnið ganganna verður 9,5 m og vegtengingar 4,1 km. Grafnir verða út um 700 þúsund m3 þar af 500 þúsund m3 Eyjafjarðarmegin. Áætlaður kostnaður á verðlagi ársins 2011 er 10,4 milljarðar króna.
Vaðlaheiðargöng munu stytta Hringveginn um 16 km og áætluð umferð við opnun ganganna er um 1400 bílar á sólarhring.
Undir stofnsamþykktina skrifuðu Hreinn Haraldsson vegamálastjóri fyrir hönd Vegagerðarinnar og Pétur Þór Jónasson framkvæmdastjóri fyrir hönd Greiðrar leiðar ehf.
Forvalsgögn eru nánast tilbúin og verða send út fljótlega. Áætlað er að bjóða út verkið í vor. Reiknað er með að framkvæmdir geti hafist í haust og að þeim ljúki og göngin opni fyrir árslok 2014.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Auka hlutaféð um 400 milljónir
- Miðvikudagur, 17. ágúst 2011, Innlent Fjármögnun ganga tryggð
- Fimmtudagur, 12. janúar 2012, Innlent Ákvörðunin hjá stjórnvöldum
- Miðvikudagur, 17. ágúst 2011, Innlent Ríkið tryggir fjármögnun ganganna
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Sex vilja gera Vaðlaheiðargöng
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
Frábær kraftblásari
Eigum nokkra kraftblásara eftir á frábæru verði kr.39.900.- Alvöru kraftur 280...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
Hyundai Tuscon, 750.000 afsláttur
Til sölu gott eintak 06/2008 silfurgrár bensínbíll, vél 1975cc, fjórhjóladrifinn...




































