Réðist á konu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 35 ár gamlan karlmann í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á konu, með þeim afleiðingum að hún fingurbrotnaði og rifbrotnaði og hlaut fleiri áverka.
Maðurinn réðist einnig á mann í húsinu og skallaði hann, sparkaði í hann, sló og beit með þeim afleiðingum meðal annars að hann rifbrotnaði.
Maðurinn fór inn í hús fólksins. Konan, sem hann réðist á, er mágkona hans en eiginkona hans og sonur voru einnig í húsinu þegar þetta gerðist.
Í dómnum er vitnað í lögregluskýrslur þar sem kemur fram, að þegar lögregla kom á staðinn mættu þeir manninum við útidyrnar á húsinu. Maðurinn hélt á ungum syni sínum og var mjög blóðugur á fötum og höndum og með greinileg sár á hnúum og fingrum.
Lögreglumenn tóku drenginn í sínar hendur og komu honum í skjól. Fram kom í skýrslu lögreglu, að fólkið hafi verið í mikilli geðshræringu og erfitt að henda reiður á því hvað hefði átt sér stað. Mikið af glerbrotum hafi verið utan við húsið og tvær rúður brotnar í útidyrahurð.
Maðurinn var æstur og illviðráðanlegur og hafi hann og konurnar hrópað hvert á annað. Þrjú börn voru þarna líka og voru skelkuð og grétu mikið.
Í íbúðinni var mikið blóð, m.a. á gólfi og í sæng, og einnig á gólfum og veggjum á stigagangi.
Fram kom að kona mannsins hafði dvalið hjá systur sinni í nokkra daga vegna ágreinings við manninn. Hann hafi síðan hringt í hana og sagst ætla að sækja hana. Maðurinn sagði, að þegar hann kom inn í húsið hafi hann hitt fyrir annan mann, sem hann var mjög ósáttur við og hefði bannað konu sinni að tala við.
Árásarmaðurinn var dæmdur til að greiða mágkonu sinni og manninum bætur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 5. júlí 2011, Innlent Beit dyravörð
- Föstudagur, 28. október 2011, Innlent Dæmdur fyrir árás
- Föstudagur, 29. apríl 2011, Innlent Í fangelsi fyrir líkamsárás
- Miðvikudagur, 9. mars 2011, Innlent Í fangelsi fyrir líkamsárásir
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Skellti höfði manns gegnum glerrúðu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































