Skandia festist í sandinum

Dýpkunarskipið Skandia.
Dýpkunarskipið Skandia.

Lóðsinn í Vestmannaeyjum kom sanddæluskipinu Skandia til aðstoðar síðdegis, en skipið hafði fest sig við Landeyjarhöfn. Vel gekk að draga skipið á flot.

Skandia var nýbúið að fylla sig af sandi þegar skipið festist. Skipstjóri Skandia þorði ekki að beita skrúfu skipsins vegna þess hvað skipið var nálægt grjótgarðinum.

Vel hefur gengið að dæla upp sandi í dag, enda er loksins komið gott sjóveður. Stefnt er að því að skipið vinni að dælingu í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert