Steingrímur álitinn ákveðinn og Jón Gnarr heiðarlegur
Steingrímur J. Sigfússon er álitinn sterkur og ákveðinn stjórnmálamaður. Birgitta Jónsdóttir er almennt talin sú sem stendur við eigin sannfæringu og Jón Gnarr er talinn heiðarlegur og í tengslum við almenning. Þetta má lesa út úr könnun sem MMR gerði á afstöðu til persónueiginleika stjórnmálamanna.
Könnunin var gerð dagana 8.-11. febrúar og var heildarfjöldi svarenda 865 einstaklingar.
Í könnuninni voru svarendur beðnir um að meta hvort nokkur persónueinkenni ættu við stjórnmálaleiðtogana eða ekki. Ef skoðuð eru svör þeirra sem tóku afstöðu má sjá að nokkur munur er á hvaða eiginleikum leiðtogarnir þykja gæddir. Þannig voru 35,7% þeirra sem tóku afstöðu sem töldu Birgittu Jónsdóttur, fyrrverandi þinghópsformann Hreyfingarinnar, hafa þann eiginleika að standa við eigin sannfæringu og 22,9% töldu hana í tengslum í almenning. Hins vegar voru eingöngu 1,1% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðu að Birgitta væri fæddur leiðtogi.
Þá voru 36,6% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðu Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vera ákveðinn, 29,2% töldu hann sterkan einstakling, 25,8% sögðu hann vinna vel undir álagi. Töluvert færri eða 9,5% þeirra sem tóku afstöðu töldu hins vegar að Steingrímur væri í tengslum við almenning.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er helst talin vera ákveðin (26,9%) og standa við eigin sannfæringu (26,6%). Aftur á móti voru einungis 5,4% sem töldu hana vera í tengslum við almenning og 1,8% töldu hana gædda persónutöfrum.
Tæpur þriðjungur þeirra sem tóku afstöðu sögðu Jón Gnarr, borgarstjóra, gæddan persónutöfrum (29,5%) eða heiðarlegan (28,8%) og um fjórðungur sagði hann í tengslum við almenning (23,7%). Á móti voru um og yfir fimm prósent þeirra sem tóku afstöðu sem töldu Jón sterkan einstakling (5,6%) eða ákveðinn (5,0%) og 3,5% þeirra sem tóku afstöðu töldu að Jón ynni vel undir álagi.
Tæpur fimmtungur þeirra sem tóku afstöðu sögðu Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, gæddan persónutöfrum (19,4%) og 17,1% sögðu Bjarna vera sterkan einstakling en einungis 7,0% töldu Bjarna í tengslum við almenning.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, voru þeir stjórnmálamenn sem flestir, eða tæp 52% þeirra sem tóku afstöðu, sögðu að byggju ekki yfir neinum af þeim eiginleikum sem spurt var um.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Jónsson Er heidarlegt ad svikja kosningaloford? -
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Bullshit..... -
Hörður B Hjartarson Og hvað segir svo þessi "stórmerkilega"
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 17. mars 2011, Innlent Traust til forsetans eykst
- Fimmtudagur, 11. nóvember 2010, Innlent Helmingur vill sömu stjórnarflokka
- Fimmtudagur, 22. september 2011, Innlent Skiptar skoðanir um staðsetningu nýs sjúkrahúss
- Þriðjudagur, 20. september 2011, Innlent Mikill meirihluti vill þjóðaratkvæðagreiðslu
- Fimmtudagur, 1. september 2011, Innlent Rúm 65% hafa ekki íhugað úrsögn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































