Óvíst hvenær Landeyjahöfn opnast

Landeyjahöfn.
Landeyjahöfn.

Ekki næst að opna Landeyjahöfn um helgina, að sögn Eimskips, sem rekur ferjuna Herjólf. 

Segir fyrirtækið, að ljóst sé að ekki náist að fjarlægja nægilega mikinn sand til að hægt sé að opna höfnina um helgina. Þá muni veður og ölduhæð tefja framkvæmdir í höfninni.

Einnig er veður- og ölduspá fyrir sunnudaginn og dagana þar á eftir slæm þannig að opnun tefst um einhverja daga.

Ekki hefur verið hægt að sigla í Landeyjahöfn frá því í janúar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert