Ósáttur við greiðslukerfi Valitors
Reynt var að svíkja út vörur fyrir eina milljón króna út úr netverslunni Eldhaf.is með stolnum kreditkortum og svikahröppum tókst að svíkja iPad út úr versluninni. Eigandi fyrirtækisins er ósáttur við greiðslukerfi Valitors og segir það allt annað en öruggt.
Verslunin er endursöluaðili fyrir Apple á Norðurlandi og er auk netverslunarinnar með verslun á Glerártorgi á Akureyri.
Guðmundur Ómarsson, eigandi og framkvæmdastjóri Eldhafs.is segir að
fyrirtækinu hafi borist pöntun upp á iPad erlendis frá að verðmæti tæpar 115.00 krónur þann 24. febrúar síðastliðinn.
„Nokkrum mínútum seinna kemur tölvupóstur frá Valitor um að greiðslan hafi gengið í gegn. Engin önnur gögn bárust frá Valitor og mér datt ekki annað í hug en að það væri í lagi með greiðsluna, fyrst engar athugasemdir voru gerðar,“ sagði Guðmundur í samtali við mbl.is.
Starfsmaður Eldhafs skrifaði út reikning á viðskiptavin, tók til vöruna og kom henni síðan í póst, samkvæmt venju.
4. mars bárust síðan tvær pantanir í gegnum vefverslunina. Önnur þeirra var upp á tvo iPad og hin upp á tvær MacBook Air fartölvur.
„Okkur fannst ástæða til að láta athuga þessar færslur, þar sem þær voru báðar gerðar erlendis frá og um var að ræða mjög háar upphæðir. Þá kom í ljós að bæði kortanúmerin voru stolin. Við ákváðum þá að láta athuga fyrri pöntunina og þá kom í ljós að um var að ræða stolið kort. Við höfðum strax samband við pósthúsið til að stöðva sendinguna, en það var of seint,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir að talsmaður Valitors hafi sagt að hann bæri sjálfur ábyrgð á því að ganga úr skugga um að nafn korthafa stemmdi við kortið. „Það getur tekið 2-3 daga, það hentar ekki í netviðskiptum. Svo reiknar fólk með því að allt sé með felldu þegar Valitor sendir staðfestingu um að færslan hafi farið í gegn.“
„Þetta heitir örugg greiðslusíða, við borgum fyrir að fá aðgang að henni og ég taldi mig vera að greiða fyrir öryggi. Valitor hefur aðgang að ýmsum upplýsingum um korthafa, sem við höfum ekki og mér datt ekki annað í hug en að það veitti ákveðið öryggi.“
Guðmundur segist hafa sent Valitor bréf vegna þessa, en engin svör fengið við því.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. mars 2011, Innlent Netviðskipti alltaf áhættusöm
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Innlent Ógilding samkeppnisyfirvalda stendur
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































