Reyna að lokka skólabörn upp í bíla
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að rannsaka tilkynningar um menn sem undanfarið hafa reynt að lokka börn upp í bíla. Undanfarið hafa borist nokkrar slíkar tilkynningar. Fullnægjandi skýring fannst á einni þeirra en hinar eru í rannsókn.
Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði að verið væri að safna upplýsingum um málin. Allir lögreglumenn sem væru á ferðinni um höfuðborgarsvæðið hefðu fengið lýsingar á bílum og meintum gerendum í þessum tilvikum og mundu hafa augun hjá sér. Hann sagði að lýsingin á svörtum bíl og mönnum í honum væri áþekk í tveimur tilvikanna. Því væri ekki útilokað að um sama bíl og menn væri að ræða.
Nýjasta tilvikið var við Húsaskóla í Grafarvogi á föstudaginn var. Ókunnugir menn á svörtum bíl buðu þá ungum dreng að skoða Legó í bíl þeirra. Hann afþakkaði boðið og lét foreldra sína vita sem gerðu skólanum viðvart. Skólayfirvöld sendu foreldrum ábendingu vegna málsins. Í henni sagði m.a. að bíllinn hefði verið svartur og mennirnir tveir. Annar þeirra með yfirvaraskegg og mjóan hökutopp.
Svipuðum bíl og mönnum sem svipar til lýsingarinnar úr Grafarvogi var lýst í Garðabæ í byrjun þessa mánaðar. Þá reyndu tveir menn að lokka átta ára dreng upp í bíl til sín við Stjörnuvöllinn. Þeir buðust til að sýna drengnum fótboltadót.
Reynt að lokka stúlkur
Einnig var tilkynnt um atvik í Hafnarfirði og Breiðholti í síðustu viku þar sem reynt var að lokka ungar stúlkur upp í bíl með dökkum rúðum. Stúlkurnar sem voru á Suðurgötu í Hafnarfirði voru um átta ára en stúlkan í Breiðholti á unglingsaldri. Þá var tilkynnt atvik við Laugardalshöll þar sem dreng var boðið upp í bíl.Í tilvikinu við Laugardalshöll náðist bílnúmer. Þegar málið var kannað fékkst eðlileg skýring á því að dreng var boðið þar upp í bíl. Maður sem var að sækja syni sína á íþróttaæfingu og var með þá í bílnum bauð ókunnugum dreng far vegna þess hvað veðrið var vont.
Aldrei í bíl ókunnugra» Mikilvægt er að brýna fyrir börnum, strax við 4-5 ára aldur, að þau eiga aldrei að fara upp í bíl hjá ókunnugum.
» Vara á börn við hættum sem geta falist í samskiptum við ókunnuga.
» Fræðslan á ekki að vera þannig að hún veki óþarfa ótta hjá barninu.





































