Sáttaboð vegna vistunar í Breiðavík

Meðferðarheimilið að Breiðuvík.
Meðferðarheimilið að Breiðuvík. mbl.is/Ómar

Sýslumaðurinn á Siglufirði póstlagði í gær rúmlega 70 sáttaboð um bætur vegna vistunar á Breiðavíkurheimilinu. Viðtakendur mega eiga von á bréfunum í dag eða á morgun og hafa Samtök vistheimilabarna boðað til fundar á föstudagskvöld til að ræða sáttaboðin.

Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður segist ekki geta tjáð sig um einstakar upphæðir en miðað við núgildandi lög verða einstaklingum greiddar allt að 6 milljónir í það heila, eða allt að 2 milljónir þegar fyrsta greiðsla af þremur fer fram hinn 1. apríl. „Svo fremi að viðtakandi hafi sent vottaða samþykkt til baka en sáttaboðinu telst hafnað hafi samþykkt ekki borist innan 30 daga.“

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að hægt sé að bera sáttaboðið undir úrskurðarnefnd ef viðtakandi er ósáttur við útreikninginn á bótaupphæðinni.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert