„Ekki gefast upp Japan“
Síðastliðinn mánudag hóf Rauði kross Íslands söfnun vegna jarðskjálftanna í Japan, en allt það fé sem safnast mun renna beint til Rauða krossins þar í landi. Með því að hringja í númerið 904 1500 má gefa 1.500 krónur sem dragast af símreikningi.
Í tengslum við söfnunina hefur verið komið á viðamiklu samstarfi „Vina Japans“ en hópurinn samanstendur af fjölda einstaklinga af japönskum uppruna á Íslandi, ásamt fulltrúum Félags Japansmenntaðra á Íslandi, Íslensk-japanska félagsins, sendiráðs Japans á Íslandi ásamt fjölmörgum öðrum Íslendingum sem tengjast Japan á einn eða annan hátt. Markmið hópsins er að vekja athygli á söfnun Rauða krossins með ýmsum hætti.
Sjálfboðaliðar frá Vinum Japans verða í Kringlunni á föstudag milli klukkan 14 og 19 og í Smáralind milli klukkan 11 og 18 á laugardag. Hópurinn mun kynna átakið og ræða ástandið í Japan við gesti og gangandi. Einkunnarorð átaksins er japanska hvatningin „Ganbare Nippon“ sem útleggst á íslensku sem „ekki gefast upp Japan“. Með þessum hvatningarorðum sýnum við samstöðu með japönsku þjóðinni.
Samstöðuviðburður í Hinu Húsinu á laugardag
Á laugardaginn milli klukkan 13 og 17 verða Vinir Japans með samstöðuviðburð í Hinu húsinu. Japanir búsettir á Íslandi hafa fundið fyrir miklum hlýhug á undanförnum dögum og langar í þakklætisskyni að bjóða alla velkomna í Hitt húsið þar sem ýmislegt verður í boði - bæði fyrir börn og fullorðna. Gestir munu geta kynnt sér þætti í japanskri menningu, brotið Origami trönur, lært japanska skrautritun og tekið þátt í að koma hvatningarskilaboðum áleiðis til íbúa Tohoku svæðisins og japönsku þjóðarinnar allrar.
Nánari upplýsingar um átakið er að finna á Facebook-síðu hópsins.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 19. mars 2011, Innlent Sýna Japönum samstöðu
- Mánudagur, 14. mars 2011, Innlent Tekið við framlögum vegna hamfaranna í Japan
- Sunnudagur, 13. mars 2011, Innlent Vill hefja söfnun fyrir Japana
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Össur á jarðhitaráðstefnu í Tókýó
- Fimmtudagur, 17. mars 2011, Innlent Japönum vottuð samúð í sendiráðinu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































