Álver vantaði í upptalninguna

Álver í Helguvík hefur verið lengi í undirbúningi.
Álver í Helguvík hefur verið lengi í undirbúningi.

Bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Garðs segja, að í upptalningu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í vikunni um fyrirhugaðar stórframkvæmdir, hafi hún talið upp nokkur verkefn. Sérstaka athygli hafi vakið að hún sleppti því að nefna stærsta og þjóðhagslega mikilvægasta verkefnið: Álver í Helguvík.

Þessi upptalning ráðherra, sætir furðu. Álver í Helguvík er það verkefni sem mun skapa flest störf hér á landi og skila mestum útflutningstekjum. Alþingi hefur þegar samþykkt að styðja uppbyggingu álvers í Helguvík með fjárfestingarsamningi," segir m.a. í yfirlýsingu bæjarstjóranna.

„Forsætisráðherra þarf í verki að sýna stuðning sinn við uppbyggingu álvers í Helguvík um leið og hún leggur öðrum verkefnum í atvinnuuppbyggingu  í landinu lið."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert