Enn reynt að lokka börn upp í bíl
Tveir menn í svörtum bíl reyndu að lokka tvo drengi úr Engjaskóla í Grafarvogi til sín í fyrradag. Að því er kemur fram í Fréttablaðinu neituðu drengirnir að fara með mönnunum.
Er þetta í fjórða sinn á tveimur vikum sem tilkynning berst um að menn á svörtum bíl reyni að fá börn inn í bílinn.
Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði við Morgunblaðið í vikunni, að verið væri
að safna upplýsingum um málin. Allir lögreglumenn sem væru á ferðinni um
höfuðborgarsvæðið hefðu fengið lýsingar á bílum og meintum gerendum í
þessum tilvikum og mundu hafa augun hjá sér.
Áður hefur verið tilkynnt um atvink við Húsaskóla í Grafarvogi á föstudaginn var. Ókunnugir menn á svörtum bíl buðu þá ungum dreng að skoða Legó í bíl þeirra. Hann afþakkaði boðið og lét foreldra sína vita sem gerðu skólanum viðvart. Skólayfirvöld sendu foreldrum ábendingu vegna málsins. Í henni sagði m.a. að bíllinn hefði verið svartur og mennirnir tveir. Annar þeirra með yfirvaraskegg og mjóan hökutopp.
Svipuðum bíl og mönnum sem svipar til lýsingarinnar úr Grafarvogi var lýst í Garðabæ í byrjun þessa mánaðar. Þá reyndu tveir menn að lokka átta ára dreng upp í bíl til sín við Stjörnuvöllinn. Þeir buðust til að sýna drengnum fótboltadót.
Reynt að lokka stúlkur
Einnig var tilkynnt um atvik í Hafnarfirði og Breiðholti í síðustu viku þar sem reynt var að lokka ungar stúlkur upp í bíl með dökkum rúðum. Stúlkurnar sem voru á Suðurgötu í Hafnarfirði voru um átta ára en stúlkan í Breiðholti á unglingsaldri. Þá var tilkynnt atvik við Laugardalshöll þar sem dreng var boðið upp í bíl. Í tilvikinu við Laugardalshöll náðist bílnúmer. Þegar málið var kannað fékkst eðlileg skýring á því að dreng var boðið þar upp í bíl. Maður sem var að sækja syni sína á íþróttaæfingu og var með þá í bílnum bauð ókunnugum dreng far vegna þess hvað veðrið var vontInnlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. mars 2011, Innlent Reyna að lokka skólabörn upp í bíla
- Mánudagur, 5. september 2011, Innlent Reyndu að tæla dreng upp í bíl
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Veitti ungum dreng eftirför
- Þriðjudagur, 6. september 2011, Innlent Enn reynt að tæla barn
- Þriðjudagur, 17. janúar 2012, Innlent Reynt að tæla dreng upp í bíl
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































