Ætla ekki að styðja stjórnina

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason tilkynntu um ákvörðun sína á blaðamannafundi í dag. stækka

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason tilkynntu um ákvörðun sína á blaðamannafundi í dag. mbl.is/Kristinn

Lilja Mósesdóttir segir að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar sé mótuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hún gagnrýndi þessa stefnu harðlega þegar hún skýrði ákvörðun hennar og Atla Gíslasonar, sem í dag sögðu sig úr þingflokki VG. Þau ætla ekki að styðja ríkisstjórnina.

Lilja sagði að þessi efnahagsstefna gangi út á að verja fjármagnskerfið og fjármagnseigendur. Gengið hafi verið of langt í niðurskurði í ríkisfjármálum sem hafi leitt til uppsagna hjá konum á landsbyggðinni.

Atli sagði ekkert leyndarmál að deilur hefðu verið innan VG og þær hefðu náð hámarki við afgreiðslu fjárlaga. Í kjölfarið hefðu forsætisráðherra og fjármálaráðherra krafist skýrra yfirlýsinga frá þeim um að þau styddu ríkisstjórnina. Það hefðu þau ekki viljað gera nema að leystur yrði sá málefnaágreiningur væri um tiltekin mál. Það hefði ekki tekist.

Lilja gagnrýndi einnig harðlega hvernig hefði verið haldið á Icesave-málinu. Það hefði t.d. legið fyrir að sumarið 2009 hefði tæplega helmingur þingflokks VG verið á móti samningnum. Samt hefði verið skrifað undir samninginn. Lilja sagðist ætla að greiða atkvæði gegn Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Atli sagðist hins vegar hafa stutt Icesave á þingi með semingi.

Atli sagði ennfremur að ágreiningur um umsókn Íslands að Evrópusambandinu ætti þátt í ákvörðun sinni um að segja sig úr þingflokknum. Hann  gagnrýndi einnig stjórnmálamenningu á Íslandi og foringjaræði.

Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs nýtur nú stuðnings 33 þingmanna eftir að Lilja og Atli sögðu sig úr þingflokki VG, en 63 þingmenn sitja á þingi. Þráinn Bertelsson, sem kosinn var á þing fyrir Borgarahreyfinguna, gekk til liðs við VG á síðasta ári.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Vel fór á með þeim Ólafi Ragnari og John Micklethwait, ritstjóra Economist, á ráðstefnunni í ...

Forsetinn ræðir við ritstjóra Economist

21:51 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat í dag fyrir svörum hjá John Micklethwait, ritstjóra The Economist, eins áhrifamesta fréttatímarits heims, á ráðstefnu um höfin sem tímaritið efndi til í Singapúr. Meira »
Óveður í Oddsskarði

Farþegarnir fluttir á Eskifjörð

21:11 Búið er að aðstoða og flytja burt alla farþega rútunnar sem valt í Oddsskarði um áttaleytið í kvöld. Í rútunni voru átta starfsmenn álversins á Reyðarfirði á leið heim til sín. Þeir voru fluttir á heilsugæsluna á Eskifirði til aðhlynningar en enginn var alvarlega slasaður. Meira »

Átta manns í rútu sem valt

Oddsskarð.
20:40 Átta manns voru um borð í lítilli rútu sem fór út af veginum í Oddsskarði rétt fyrir klukkan 20 í kvöld. Veginum er nú lokað. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega, en björgunarsveitir eru að flytja fólkið úr skarðinu. Meira »

Lést í bílslysi í Tansaníu

Gunnar Örn Gunnarsson
20:29 Íslenski pilturinn sem lést í bílslysi í Tansaníu síðastliðinn laugardag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann bjó í Helsingborg í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Flutningabíll valt á Fjarðarheiði

Á Fjarðarheiði.
20:37 Stór flutningabíll með eftirvagn, sk. trailer, valt á Fjarðarheiði ofan Seyðisfjarðar í vonskuveðri um sjöleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tveir menn í bílnum og sat annar þeirra fastur. Meira »

Oddsskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddsskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »

Styttist í hrognafrystingu

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi
20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og -frystingu. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna sk. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi hinn 17. febrúar sl. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
GSM öryggis- hússtjórnunar- & vöktunarke
Til sölu GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunarkerfi fyrir, sumarhús, heimili, ...
VW Polo 2003 1,2L eyðsla 6L á 100/km ekinn 157 þ. km. Verð 610 þúsund staðgreitt.
VW Polo, árg. 2003. 1,2L eyðsla 6L á 100/km, ekinn 157 þ. km. beinskiftur, 5 dyr...
 
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012022019 IV/ V H...
Starfsmaður í sölu- og bókunardeild
Hótel- og veitingarekstur
Starfsmaður í sölu- og bókunardeild Cen...
Fullbúið skrifstofu-, æfinga- og sýningarhúsnæði óskast

15190 - Fullbúið skrifstofu-, æfinga- o...
Deildarlæknir við geðdeild
Heilbrigðisþjónusta
Deildarlæknir við geðdeild Sjúkrahússins...