Borgin þarf ekki að endurgreiða lóðir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfum nokkurra einstaklinga um að þeir fái að skila lóðum í Úlfarsárdal í Reykjavík og að Reykjavíkurborg endurgreiði þeim verð, sem greitt var fyrir byggingarrétt.
Um er að ræða lóðir, sem boðnar voru út í fyrsta áfanga íbúðarbyggðar í nýju hverfi í suðurhlíðum Úlfarsfells árið 2006. Í útboðsskilmálum sagði, að um væri að ræða sölu á byggingarrétti en ekki á lóðunum sjálfum og að gerður yrði leigusamningur um lóðirnar eftir almennum reglum.
Um er að ræða fjögur mál þar sem þess var krafist að Reykjavíkurborg greiddi á bilinu 19-30 milljónir til baka í hverju máli.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir m.a. að í gögnum um fyrirhugað skipulag á svæðinu sé því lýst með almennum orðum en engu lofað um að uppbyggingu hverfisins í heild eða að hluta yrði lokið innan tiltekins tíma enda ekki á valdi Reykjavíkurborgar að tryggja það.
Hvorki deiliskipulagið né önnur gögn gefi heldur fyrirheit um að uppbygging gatnakerfis, skóla, íþróttamannvirkja, leiksvæða og annarrar opinberrar þjónustu innan hverfisins yrði að fullu lokið áður en einstakir lóðarhafar lykju við framkvæmdir á lóðum sínum. Hafi kaupendur byggingarréttar því ekki getað vænst annars en að hraði uppbyggingar þessarar þjónustu í hverfinu héldist að miklu leyti í hendur við fjölgun íbúa þess sem aftur myndi ráðast af getu einstakra lóðarhafa til að ljúka byggingarframkvæmdum á lóðum sínum.
Því fellst héraðsdómur ekki á að Reykjavíkurborg hafi vanefnt skyldur sínar gagnvart kaupendunum á þann hátt að þeim sé heimilt að rifta kaupunum á byggingarréttinum og krefjast skaðabóta.
Þá hafi ekki verið sýnt fram á að borginni sé lagalega
skylt að taka við lóðunum og byggingarrétti sem þeim fylgi og endurgreiða kaupverðið.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 8. maí 2010, Innlent Lóðaskil gætu kostað borgina milljarða
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Reykjavíkurborg tapar þremur lóðamálum
- Fimmtudagur, 12. maí 2011, Innlent Fá ekki að skila lóðum
- Fimmtudagur, 24. nóvember 2011, Innlent Frekleg mismunun við lóðaúthlutun
- Fimmtudagur, 11. nóvember 2010, Innlent Hafnaði kröfu um skil á lóð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































