Fagnar árangri í aðildarviðræðum
Utanríkismálanefnd Evrópuþingsins segist í skýrslu um Ísland fagna árangri í aðildarviðræðum landsins og Evrópusambandsins þótt enn sé talsvert verk óunnið í ýmsum málum.
Eru sérstaklega nefnd Icesave-deilan, hvalveiðar og vilji Íslendinga til að vernda sjávarútveg og landbúnað.
Um er að ræða fyrstu skýrslu nefndarinnar um Ísland frá því aðildarviðræðurnar hófust á síðasta ári. Nefndin segist fagna því eitt af elstu lýðræðisríkjum álfunnar, sem hafi virkt markaðshagkerfi, kunni að ganga í Evrópusambandið. Hins vegar séu nokkur viðkvæm mál óleyst.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá Evrópuþinginu að Rúmeninn Cristian Dan Preda hafi skrifað skýrsluna sem var samþykkt með 48 atkvæðum gegn 2 en einn greiddi ekki atkvæði.
Fram kemur, að nefndin hvetur Ísland og Evrópusambandið til ná niðurstöðu í viðræðum um makrílkvóta. Þá leggi þingmenn áherslu á að Ísland þurfi að laga fiskveiðistjórnunarlög sín að reglum Evrópusambandsins um innri markaðinn. Ísland hafi þegar lýst þeirri almennu afstöðu, að það vilji hafa yfirráð yfir fiskveiðistjórnun og efnahagslögsögu sinni.
Þá segir nefndin, að alvarlegur ágreiningur sé enn um hvalveiðar og leggur áherslu á að hvalveiðibann sé hluti af regluverki Evrópusambandsins.
Þingmenn lýstu ánægju með að náðst hefði nýr Icesave-samningur milli Íslands, Bretlands og Hollands. Sögðust þeir vona að jákvæð niðurstaða yrði í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn.
Haft er eftir Preda, að svo virðist sem stuðningur hafi aukist á Íslandi við að aðildarviðræðum verði haldið áfram og að meirihluti Íslendinga treysti Evrópuþinginu. Hins vegar telji utanríkismálanefndin, að auka þurfi fræðslu á Íslandi um hvað aðild að Evrópusambandinu feli í sér. Hvetja þingmennirnir íslensk stjórnvöld til að víkka út almennu umræðuna svo almenningur geti tekið upplýsta ákvörðun í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Trúi því ekki! -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Hvers vegna að fagna árangri? -
Guðrún María Óskarsdóttir. Á þessi yfirlýsing að segja okkur að ekki sé um ... -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Þá vitum við það.... -
Kristinn Pétursson Áformar einhver að Íslendingar afsali sér sjálfsforræði um hvalveiðar? -
Magnús Sigurðsson Hefur ESB í hótunum við Ísland? -
Hjörleifur Harðarson bíddu erum við í aðildar viðræðum -
Jón Valur Jensson Þeir geta troðið þessu nefndaráliti sínu í næstu ruslafötu -
Haraldur Haraldsson Fagnar árangri í aðildarviðræðum/svei því attan,að svifta okkur frelsinu!!! -
Gunnar Waage Samfylkingin valtar yfir Vinstri Græna -
Gunnar Heiðarsson Aðlögunarferlið á fullu
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 10. mars 2010, Innlent Vilja aðildarviðræður þrátt fyrir Icesave
- Miðvikudagur, 7. júlí 2010, Innlent Ísland hætti hvalveiðum
- Laugardagur, 9. apríl 2011, Innlent Felldu tillögu um að hætta aðildarviðræðum
- Fimmtudagur, 17. júní 2010, Innlent Ísland uppfyllir pólitísk skilyrði
- Föstudagur, 20. apríl 2012, Innlent „Kemur vonandi vitinu fyrir þá“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































