Flokkurinn klofinn í Suðurkjördæmi
Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason á blaðamannafundi í gær þar sem þau kynntu ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki VG. mbl.is
Atli Gíslason, þingmaður VG, sagði í morgunútvarpi Rásar 2 að flokkurinn væri klofinn í Suðurkjördæmi. Hann sagði samþykkt stjórnar kjördæmisráðs VG í kjördæminu frá í gærkvöldi ekki koma á óvart en hann muni ekki segja af sér þingmennsku á næstunni.
Atli sagðist telja, að hann nyti stuðnings meirihluta grasrótar flokksins í kjördæminu þótt stjórn kjördæmasambandsins hefði lýst þeirri afstöðu, að með úrsögn Atla úr þingflokknum hafi orðið trúnaðarbrestur þannig að Atla sé ekki lengur sætt í umboði kjósenda VG á Suðurlandi.
Atli sagði, að þegar hann kom að kjördæminu haustið 2006 hafi VG notið 4% fylgis í Suðurkjördæmi. Í kosningunum 2007 fór fylgið í 10% og í 17% í kosningunum 2009. En eftir að flokkurinn studdi umsókn um aðild að Evrópusambandinu það ár hafi flokkurinn klofnað á Suðurlandi og fjöldi trúnaðarmanna þar sagt sig úr flokknum.
Sagðist Atli telja að meirihlutinn í grasrót kjördæmisins styðji ákvörðun hans um úrsögn og hann hafi fengið fjölda tölvupósta og SMS skeyta þar sem stuðningi sé lýst við hann.
Þegar Atli var spurður hvort hann ætlaði að segja af sér þingmennsku svaraði hann neitandi og sagðist áfram myndi vinna að eigin sannfæringu og fyrir þá flokksfélaga í kjördæminu sem styðji hann.
Atli staðfesti, að þau Lilja hefðu skýrt þremur þingmönnum frá ákvörðun þeirra í trúnaði á sunnudag, þar á meðal ráðherrunum Ögmundi Jónassyni og Jóni Bjarnasyni. Þá hefði hann reynt að hafa samband við Steingrím J. Sigfússon, formann VG, í gærmorgun með tölvupósti og SMS.
Í samþykkt kjördæmisráðs VG í Suðurlandi er lýst yfir vonbrigðum með að Atli skuli ekki hafa rætt fyrirætlanir sínar við stofnanir og grasrót flokksins í kjördæminu. Atli sagði, að það hefði verið erfitt fyrir sig að fara um kjördæmið og ræða þetta mál fyrirfram. Hann hefði hins vegar sent félögum sínum í Suðurkjördæmi ýtarlegt bréf í gær og útskýrt fyrir þeim ástæður þess að hann tók þessa ákvörðun um úrsögn úr þingflokknum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Úrsögn nýtur ekki mikil stuðnings
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Rétt að Atli víki af þingi
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Harma úrsögn Atla
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Atli situr ekki í umboði kjósenda VG
- Miðvikudagur, 23. mars 2011, Innlent Segir forystu VG hafa beðið um áskoranir
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































