Kærir framboð Stefáns Einars
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, frambjóðandi til formannskjörs VR, hefur kært framboð Stefáns Einars Stefánssonar til formannskjörs í félaginu, vegna meintrar afritunar hans á kjörskrá. Hún krefst þess að honum verði vikið úr framboðinu.
Guðrún Jóhanna segir frambjóðendur hafa fengið kost á að móttaka eintak af kjörskrá félagsins fyrir árið 2011 í prentuðu formi. Kjörskrána máttu aðilarnir eingöngu nota í tengslum við kosningarnar og máttu ekki afrita hana með neinum hætti eða afhenda hana þriðja aðila. Guðrún Jóhanna móttók ekki kjörskrána þar sem hún taldi hafa af henni takmörkuð not í prentuðu formi.
Bréf í forprentuðu umslagi frá Stefáni Einari, sem dagsett er 16.mars, barst Guðrúnu Jóhönnu en þar var að finna prentaðan framboðsbækling hans og bréf til VR félaga. Guðrún Jóhanna vill vekja athygli kjörstjórnar á því hvernig útsendingunum sé háttað, en hún telur umslag Stefáns Einars bera það óyggjandi með sér að það sé sent út í rafrænum (tölvutækum) skrám, en frambjóðendum var ekki afhentur aðgangur að slíkum skrám um félagsmenn VR.
„Ég tel því að slík notkun sé óheimil í þessum kosningum og því beri að taka frambjóðandann út af framboðsskrá,“ segir Guðrún Jóhanna í bréfi til Kjörstjórnar VR. Jóhanna Guðrún vill jafnframt að upplýst verði með hvaða hætti Stefán Einar fékk aðgang að rafrænum félagsskrám.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Vísar ásökunum Guðrúnar á bug
- Miðvikudagur, 23. mars 2011, Innlent Kæru vegna kosninga VR vísað frá
- Fimmtudagur, 31. mars 2011, Innlent Gagnrýna yfirlýsingar um kosningasvindl
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent Framboðsfrestur til forystu VR rennur út á fimmtudag
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































