Senn dragi til góðra tíðinda
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kveðst vera bjartsýn á að senn muni draga til góðra tíðinda hvað varðar viðræður Landsvirkjunar og hugsanlegra orkukaupenda vegna atvinnuuppbyggingar á Norðausturlandi.
„Það bíður okkar mikið verk að undirbúa samfélagið fyrir stórfellda atvinnuuppbyggingu. Ég er gríðarlega bjartsýn á að þarna muni draga til tíðinda innan skamms,“ segir Katrín í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var fyrirspyrjandi og spurði hann Katrínu sérstaklega út í viðræður Landsvirkjunar og Alcoa í tengslum fyrirhugaða uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík.
Katrín segir að Landsvirkjun eigi í viðræðum við Alcoa, en einnig við aðra aðila.
„Það er mikil eftirspurn eftir orkunni þarna á svæðinu. Og Landsvirkjun er líka með einbeittan vilja til þess að selja orkuna til atvinnuuppbyggingar inn á svæðið. Það skiptir gríðarlega miklu máli, ekki bara fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni og fyrir norðan, heldur líka fyrir þjóðarhag allan.“
Kallar eftir þverpólitískri samstöðu
Höskuldur spurði Katrínu jafnframt hvort hún væri ekki tilbúin að stuðla að því að ná þverpólitískri samstöðu á Alþingi varðandi atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi.
„Núna þegar við sjáum vonandi fyrir endann á þessu máli, hvort að við getum ekki hér á Alþingi slíðrað sverðin og allir þeir sem geta vettlingi valdið sameinast um að klára verkefnið. Við erum þar með að auka hagvöxtinn á Íslandi, minnka atvinnuleysið og koma hjólum atvinnulífsins af stað. Ég er viss um það að það er hægt að ná þessum þverpólitíska sáttmála eða samningi og landa þessu verkefni,“ sagði Höskuldur.
„Það stendur svo sannarlega ekki á mér og ég tel að ég hafi nú stigið mörg stór skref í þá átt að slíðra sverðin, hvað varðar þetta svæði og atvinnuuppbygginu þar,“ sagði Katrín þegar hún svaraði þingmanninum.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Katrín iðnaðarráðherra kann ekki siðareglur Jóhönnu. -
Torfi Kristján Stefánsson Enn ein ástæða fyrir Vinstri græna að hætta samstarfinu
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 25. maí 2010, Innlent Iðnaðarráðherra fundar með Þingeyingum
- Miðvikudagur, 2. nóvember 2011, Innlent Fundað um atvinnumál á Húsavík
- Fimmtudagur, 27. maí 2010, Innlent Iðnaðarráðherra tali skýrt
- Miðvikudagur, 26. maí 2010, Innlent Leikaraskapur framsóknar
- Föstudagur, 3. júní 2011, Innlent Jarðvarmi til atvinnuuppbyggingar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































