Verðlaunuð fyrir framúrskarandi þjónustu

Verðlaunahafarnir ásamt Margréti Kristmannsdóttur, formanni SVÞ. Flugliðar frá Icelandair tóku …
Verðlaunahafarnir ásamt Margréti Kristmannsdóttur, formanni SVÞ. Flugliðar frá Icelandair tóku við verðlaununum f.h. fyrirtækisins.

Ásbjörn Valur Sigurgestsson, starfsmaður Bílastæðasjóðs, var verðlaunaður fyrir framúrskarandi þjónustu og Icelandair var valið besta þjónustufyrirtækið ársins 2011 á ráðstefnu Samtaka atvinnulífsins og Samtaka verslunar og þjónustu í morgun.

Fram kemur í tilkynningu að  Ásbjörn Valur hafi starfað hjá Bílastæðasjóði síðan 1992 og lengst af í bílageymslunni á móti Þjóðleikhúsinu. Margir kunni góðar sögur af Ásbirni eftir að hafa átt í samskiptum við hann.

„ Ásbjörn hefur verið nefndur alveg síðan ég byrjaði að kenna fyrir allnokkrum árum, sem sá einstaklingur sem fer fram úr væntingum þegar kemur að þjónustu. Margir hafa sagt að Ásbjörn breyti deginum með jákvæðni og frábærri þjónustulund. Það er því mikill heiður að fá að veita honum þessa viðurkenningu,“ segir dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, formaður valnefndar,  um valið.

„Þjónustuvitund, stefnumótandi þjónustustefna, viðbragðsflýtir og sveigjanleiki gagnvart utanaðkomandi rekstrarþáttum s.s. krísum og vel skilgreind þjónustukeðja eru helstu ástæður þess að Icelandair varð fyrir valinu,“ segir í umsögn valnefndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert