Ekki hærra sýrustig í Eyjafirði

Frá sýnatöku í Eyjafirði í gærmorgun.
Frá sýnatöku í Eyjafirði í gærmorgun. mbl.is

Niðurstöður af sýnum sem tekin voru í Eyjafirði í gær benda ekki til þess að sýrustig sjávar í Eyjafirði hafi hækkað. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Becromal. 

Samkvæmt greiningum sýna úr Eyjafirði er sýrustig í sjónum innan eðlilegra marka. „Þetta er til vitnis um að frárennsli aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi við Akureyri hefur engin áhrif haft til hækkunar á sýrustigi sjávarins,“ segir í tilkynningunni.

Matís annaðist sýnatöku og greiningu þeirra í framhaldi af umræðu fyrir helgi um að verksmiðjan losi frárennsli í sjó með háu sýrustigi. Sýni voru tekin við afrennsli verksmiðjunnar, við ströndina milli Oddeyrartanga og Krossaness, framan Oddeyrartanga og á miðjum firðinum framundan verksmiðjunni í Krossanesi. Sýnin eru því tekin á svæði allt frá fjörunni við verksmiðjuna í um 3 kílómetra fjarlægð.

„Sýrustig mældist á bilinu 7,95 til 8,60. Sýrustig sjávar er á bilinu 7,50 til 8,40 og liggja mæligildin í þessari rannsókn á þessu bili,“ segir í niðurstöðum Matís.

Verksmiðja Becromal losar í dag á bilinu 30-70 rúmmetra af frárennsli í sjó á klukkustund og er þar að meginuppistöðu um að ræða skolvatn sem notað er til þrifa á vélbúnaði verksmiðjunnar. Fyrsta vél verksmiðjunnar var gangsett sumarið 2009 og síðan þá hafa að jafnaði 3 vélar bæst við í hverjum mánuði. Með auknum vélbúnaði hefur frárennslisvatn eðlilega aukist og síðustu vikur varð vart við tíðari sveiflur í sýrustigsgildi þess. Samkvæmt starfsleyfi Becromal eiga sýrustigsmörk í affalli hennar að vera á bilinu 6,5 til 9,5 en í einstökum tilvikum fóru sýrustigsgildi upp fyrir þessi mörk og niður fyrir þau. Í fréttatilkynningunni segir að þetta gerist í skamman tíma í senn.

„Búnaði í verksmiðjunni er ætlað að bregðast við sveiflum sem þessum og jafna sýrustig affallsins. Þegar ljóst var að hann reyndist hann ekki ráða við sveiflurnar var ráðist í verulegar endurbætur og breytingar kerfinu til að tryggja að frárennsli væri alltaf innan marka. Þessu verkefni var lokið á föstudag og hefur frárennsli síðan verið stöðugt og innan vel innan marka. Þrátt fyrir það verður gripið til enn frekari öryggisráðstafana á þessum þætti í verksmiðjunni í framhaldinu þannig að þrepaskipt öryggiskerfi bregðist við ef eitthvað ber út af í búnaði.

 

Með þessum aðgerðum hefur fyrirtækið tryggt af fremsta megni úrbætur á athugasemdum Umhverfisstofnunar frá því á föstudag hvað varðar sýrustigsmörk í frárennsli. Breyting hefur einnig verið gerð á verkferlum til að tryggja að tilkynningar verði samstundir sendar stofnuninni ef frávik verða á sýrustigsgildi í affallsvatninu. Í þriðja lagi er væntanlegur búnaður til landsins í vikunni sem hefur þann tilgang að vakta stöðugt fósfór, en leiðnimælir hefur þegar verið settur upp.“

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert