Metnaðarlítil áætlun

ÁrnI Páll Árnason og Már Guðmundsson kynna áætlun um afnám …
ÁrnI Páll Árnason og Már Guðmundsson kynna áætlun um afnám gjaldeyrishafta. mbl.is/Árni Sæberg

„Þessi metnaðarlitla áætlun slær mig illa. Gjaldeyrishöftin eru skaðleg nútímafyrirtækjum og svo lengi sem þau gilda eru starfsskilyrði atvinnulífsins lík því sem var fyrir fjöldamörgum árum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði á föstudag að stefnt væri að því að afnema gjaldeyrishöft árið 2015. Ráðherrann mun leggja fram tillögu á Alþingi í næstu viku til þess að fá heimild til að fá að framlengja höftin til 2015.

„Afnám gjaldeyrishafta væri yfirlýsing um að stjórnvöld hefðu trú á hagkerfinu og íslensku hagkerfi en að höftin vari lengur vitnar um hið gagnstæða – enda eru afleiðingarnar meðal annars þær að við fáum ekki erlent fjármagn inn í landið sem skiptir svo miklu í dag. Það er afar brýnt að afnema gjaldeyrishöftin og það ætti að gerast mun hraðar en ætlunin er. Fimm ár eru alltof langur tími.“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur í svipaðan streng og Vilhjálmur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert