Heldur slök sala á mjólkurvörum í febrúar

mbl.is/Ómar

Sala á mjólkurvörum í febrúarmánuði var heldur minni í ár en á sama tíma í fyrra. Fram kemur á vef Landssambands kúabænda að samdráttur á próteingrunni hafi verið 4,41% en 7,25% á fitugrunni.

Segir að ostur hafi verið eini vöruflokkurinn sem hafi sýnt aukningu. Í öðrum flokkum hafi verið samdráttur.

Þá kemur fram að skýringin á mun minni fitusölu sé vafalítið sú að í ár hafi bolludagur í marsmánuði en hann hafi verið í febrúar í fyrra. 

Þegar litið er til síðustu 12 mánaða er samdráttur í sölu á próteingrunni 1,02%, heildarsalan er 114,7 milljónir lítra, eða 1.300 þúsund lítrum undir greiðslumarki yfirstandandi árs. Á fitugrunni er samdráttur í 12 mánaða sölu 0,62%, heildarsalan er 110,5 milljónir lítra, að því er segir á vef Landssambands kúabænda. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert