Mörður og landlæknir höfðu betur
Lög um sameiningu embættis landlæknis og Lýðheilsustofnunar voru samþykkt á Alþingi í dag með 29 samhljóða atkvæðum. Þingmenn Sjálfstæðisflokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Jafnframt samþykkti meirihluti þingsins með 27 atkvæðum gegn 12 breytingartillögu frá Merði Árnasyni, þingmanni Samfylkingarinnar, um að nýja stofnunin heiti Embætti landlæknis en ekki Landlæknir - lýðheilsa eins og gert var ráð fyrir í frumvarpi um sameininguna.
Mörður sagði, að embætti landlæknis hefði verið til í fjórðung þúsaldar og vonandi sæju menn hina sögulegu hefð sem nauðsynlegt væri að hafa í heiðri og greiddu atkvæði samræmi við sinn þjóðernislega metnað og það sögulega samhengi sem skapaðist þegar Friðrik V skipaði Bjarna Pálsson landfysikus hér uppi á Íslandi til að gæta að lýðheilsu Íslendinga.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, flokkssystir Marðar, sagði að afstaða hennar til tillögu Marðar hefði ekkert með þjóðerniskennd að gera eða virðingu fyrir gamalli karllægri íslenskri sögu.
„Það er kannski kominn tími til að hugsa nýjar hugsanir, hugsa takt við tímann, finna sig í réttri öld; við erum í 21. öldinni og ég vona að stofnunin muni heita Landlæknir - lýðheilsa, " sagði Þórunn.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að gamalt og gott og nýtt og ferskt næði ágætlega saman í nafninu Landlæknir-lýðheilsa og þetta hefði verið niðurstaða starfsfólks stofnananna tveggja.
Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að það væri mjög skemmtilegt að upplifa að vera sammála Merði Árnasyni. Og Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, lýsti yfir eindregnum stuðningi við tillögu Marðar „sem hefur svo oft reynt að koma hér upp sem boðberi sátta eins og við þekkjum."
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent Mörður biður Vigdísi afsökunar
- Laugardagur, 27. nóvember 2010, Innlent „Menn hafa tilfinningaleg tengsl til beggja nafna“
- Þriðjudagur, 1. júní 2010, Innlent Mörður mærir Besta flokkinn
- Þriðjudagur, 23. nóvember 2010, Innlent Þingmenn þvoi sér í framan
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Þekkja aðeins viðvarandi flokkadrætti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































