Markaðssetning búfjárafurða ekki viðunandi

mbl.is/Árni Torfason

Matvælastofnun telur ekki viðunandi, að markaðssetja afurðir búfjár frá bæjum í Engidal í Skutulsfirði við Ísafjörð vegna díoxínmengunar í dýrunum. Stofnunin telur að það sé ekki sitt hlutverk að ákveða hvort eða hvenær skepnunum verði farga.

Málið kom fyrst upp í desember þegar í ljós koma díoxín var yfir mörkum í mjólk í Skutulsfirði, en mengunin er rakin til sorphreinsistöðvarinnar Funa í Engidal. Mæling leiddi einnig í ljós að díoxín var í sauðfé á svæðinu. Ekki er ennþá búið að farga sauðfé á bjæjunum, en aðeins er um mánuður þangað til sauðburður á að hefjast.

Kjartan Hreinsson, dýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að skýrsla um þetta mál, sem m.a. hefur að geyma niðurstöðu mælinga, bendi til að óráðlegt sé að markaðssetja afurðir frá bændum á svæðinu. 

Stærsti sauðfjárbóndinn á svæðinu er Kristján Ólafsson með um 200 fjár. Í sýni sem tekið var úr kjöti frá honum í vetur greindist ekki díoxín yfir mörkum. Síðar var tekið annað sýni úr fimm vetra gamalli á sem gengið hafði í Engidal og segir Kjartan að díoxín í henni hafi verið yfir mörkum. Þessi rannsókn staðfesti því þá niðurstöðu að díoxín sé í skepnum á svæðinu.

Kjartan útilokar alls ekki að einhver hluti hjarðarinnar sé laus við díoxínmengun, en bendir á að það kosti um 150 þúsund að rannsaka hvert sýni.

Kjartan segir að það sé hlutverk Matvælastofnunar að tryggja matvælaöryggi og stofnunin leggist gegn því að kjöt frá bæjunum verði sett á markað. Hann segir að það sé hins vegar ekki hlutverk stofnunarinnar að taka ákvörðun um hvenær skepnunum sé fargað eða taka ákvörðun um hvernig bændum sé bætt það tjón sem þeir verði fyrir. Aðspurður um hver eigi að taka ákvörðun um förgun segir hann að hana verði bændurnir sjálfir að taka.

Matvælastofnun boðaði í dag til fundar með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Bændasamtökum Íslands, samtökum afurðasölufélaga og Umhverfisstofnun þar sem sérfræðihópur kynnti áfangaskýrslu um áhrif díoxínmengunar á framtíð búskapar í Engidal í Skutulsfirði. Niðurstaða fundarins og sérfræðihópsins var sú að markaðssetning búfjárafurða af þessu svæði sé ekki ásættanleg og að skoða verði framtíð búskapar á svæðinu í því ljósi.

Til að taka afstöðu til framtíðaraðgerða á svæðinu var ákveðið að þegar yrði boðað til fundar með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, umhverfisráðuneytinu, MAST, Umhverfisstofnun, Bændasamtökum Íslands, fulltrúum bænda á svæðinu og Ísafjarðarkaupstað.

 
Matvælastofnun mun senda búfjáreigendum í Skutulsfirði bréf þar sem þeim er kynnt að stofnunin hyggist setja áframhaldandi bann við sölu og dreifingu búfjárafurða vegna díoxínmengunar þar til sýnt hefur verið fram á að afurðir standist kröfur um leyfileg mörk fyrir slík efni.

Skýrsla Matvælastofnunar


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VW TRANSPORTER 4X4 DÍSIL 2006
Til sölu VW TRANSPORTER KASTEN SYNCRO Dísil árg. 2006 með fjórhjóladrifi ekinn ...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunark
Til sölu GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunarkerfi fyrir, sumarhús, heimili, ...
Til sölu húsbíll
Til sölu Húsbíll Til sölu Benz 307D 3,4L disel húsbíll árg.1981 Upplýsing. í s...
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...