Kvennó sigraði

Lið Kvennaskólans með hljóðnemann. Skjámynd af vef RÚV.
Lið Kvennaskólans með hljóðnemann. Skjámynd af vef RÚV.

Kvennaskólinn í Reykjavík stóð uppi sem sigurvegari í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Kvennó mætti Menntaskólanum í Reykjavík í æsispennandi viðureign. Fóru leikar 22-21 fyrir Kvennó og réðust úrslitin á lokaspurningunni.

Keppnin, sem fór fram Háskólabíói, var sýnd í beinni útsendingu að viðstöddu fjölmenni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert