Afnotatími útgerða verði til 35 ára
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri samtakanna. mbl.is/Kristinn
Samtök atvinnulífsins leggja til að afnotatími útgerða af aflahlutdeild verði til a.m.k. 35 ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tillögum sem samtökin hafa kynnt ríkisstjórninni.
Í fréttatilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að með tillögunum sé verið að stíga skref til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi. Tillagan feli í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið sé verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkana í þessum efnum. „SA telja að nú sé einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins. Samtök atvinnulífsins hafa fulla trú á að ríkisstjórnin muni taka í útrétta sáttahönd atvinnulífsins í þessum efnum.“
Samtök atvinnulífsins leggja til að gerð verði sú grundvallarbreyting að í stað þess að afnot aflahlutdeildar séu ótímabundin verði gerðir samningar á milli ríkisins og útgerða um tímabundin afnot útgerða af aflahlutdeild.
Samtökin leggja til að afnotatími útgerða af aflahlutdeild verði til a.m.k. 35 ára. Samningarnir feli í sér að þegar hluti samningstímans er liðinn, t.a.m. þegar hann verður hálfnaður, þá hafi útgerðir rétt til framlengingar þannig að jafn langur tími og liðinn er bætist við þann tíma sem eftir er. Með þessu móti væri tekið upp sambærilegt fyrirkomulag í sjávarútvegi og tillögur hafa verið um varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins.
Samtök atvinnulífsins leggja til að lagaákvæði um veiðigjald verði tekin til endurskoðunar þannig að stofn þess verði hagnaður útgerðarinnar í stað reiknaðrar framlegðar eins og nú er.
„Á Íslandi er rekinn öflugur, sjálfbær og arðbær sjávarútvegur. Á íslensk útgerðarfyrirtæki er lagt sérstakt gjald, svonefnt veiðigjald, hátt í þrjá milljarða króna á fiskveiðiárinu 2010 - 2011. Víða er sjávarútvegur ríkisstyrktur um háar fjárhæðir. Mikilvægt er að íslenskur sjávarútvegur geti áfram lagt sem mest til samfélagsins og því er nauðsynlegt að rekstrarskilyrði hans verði sem best,“ segir í yfirlýsingu SA.
Bloggað um fréttina
-
Þorsteinn H. Gunnarsson Sólarlagsákvæði -
Finnur Hrafn Jónsson Stríðsyfirlýsing í formi sáttatillögu
Innlent »
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 29. janúar 2011, Innlent Forsætisráðherra og ASÍ fara með rangt mál
- Mánudagur, 15. mars 2010, Innlent Vilja auka þorskaflaheimildir
- Miðvikudagur, 2. febrúar 2011, Innlent SA fylgjandi breytingum á sjávarútvegi
- Fimmtudagur, 3. júní 2010, Innlent Mikil viðskipti með aflamark
- Sunnudagur, 6. febrúar 2011, Innlent SA: Loðnubrestur af mannavöldum yfirvofandi
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































