Gígjökull hopar mikið
Jökulsporður Gígjökuls hefur hopað tugi metra síðan gaus í Eyjafjallajökli, en við gosið hljóp mikið vatn úr jöklinum niður Gígjökul og út í Markarfljót. Sporðurinn er núna 100-150 ofar en hann var árið 2009.
Verkfræðistofa Suðurlands ehf. hefur Gígjökul í fóstri fyrir Jöklarannsóknafélagið, en verkefnið felst í því að mæla stöðu jökulsporðsins árlega.
„Með hlaupinu lagðist malarlag yfir jökulinn. Það er því um 2,5 hektarar af ís undir mölunni. Malarlagið er misþykkt, líklega frá einum metra upp í 10 metra,“ segir Páll Bjarnason tæknifræðingur hjá Verkfræðistofnunni sem fór og skoðaði aðstæður í síðasta mánuði ásamt Bárði Árnasyni.
Páll sagði að búast mætti við að þessi ís yrði nokkra áratugi að bráðna enda væri hann vel einangraður undir mölinni. Páll sagði jökulsporðurinn hefði hopað um einhverja tugi metra í sumar og sú þróun hefði haldið áfram. Hann sagði að lítill ís kæmi niður skriðjökulinn núna vegna eldsumbrotanna sl. sumar. Páll sagðist fara aftur til mælinga í haust.
Talsvert stórt lón var framan við Gígjökul, en það fyllist af möl í gosinu og er horfið. Páll sagði að það myndaðist lítill pollur við jökulinn þegar bráðnun væri mikil. „Vatnið rennur síðan undir gamla ísinn og hverfur þar.“
Páll sagði að mjög gaman væri að skoða aðstæður þarna. Þetta væri um 1,5 km ganga að jöklinum frá gamla vaðinu og aðstæður til gönguferða væru ágætar. Fólk þyrfti hins vegar að gæta varúðar við jökulsporðinn. Þar gætu myndast holur þar sem jökullinn væri að bráðna.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. apríl 2010, Innlent „Lónið er horfið“
- Þriðjudagur, 4. maí 2010, Innlent Algjörlega mögnuð lífsreynsla
- Þriðjudagur, 4. maí 2010, Innlent Lokun hættusvæða enn í gildi
- Laugardagur, 1. maí 2010, Innlent Þrjátíu metra hækkun við jökul
- Miðvikudagur, 5. maí 2010, Innlent Mögnuð nánd við Gígjökul
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































