Deildar meiningar um skóla og frístundir

Starfsfólk ÍTR og skólastjórnendur fjölmenntu á fund með borgarfulltrúum meirihlutans í morgun. stækka

Starfsfólk ÍTR og skólastjórnendur fjölmenntu á fund með borgarfulltrúum meirihlutans í morgun. Mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs segir að sér finnist það persónulega mjög heillandi hugmynd að skóli og frístundir flæði meira saman á vinnudegi barna í Reykjavík. Á hinn bóginn séu aðrir sem vilji skarpari skil þarna á milli. „Á þessu eru einfaldlega deildar meiningar og það er gott að ræða það," sagði Oddný, á fundi sem boðaður var með starfsfólki ÍTR og skólastjórnendum í dag.

Á fundinum var rædd „Tillaga 1" um sameiginlega yfirstjórn grunnskóla og frístundaheimila í Reykjavík. Lagt er til að stefnumótun skóla- og frístundaheimila verði sameiginleg í allri borginni frá og með hausti 2012 en jafnframt stefnt að því að haustið 2011 verði skóla- og frístundastarf samþætt í a.m.k. einu hverfi til að undirbúa breytinguna í borginni allri.

Oddný sagði að breytingarnar væru nú á þeim stað í ferlinu að umsagnir menntaráðs og ÍTR séu í vinnslu og umsagnir foreldra, skólaráða og fagaðila til skoðunar. Oddný sagði að allt starf með börnum ætti að vera í stöðugri þróun og því væri áhugavert að velta fyrir sér hvað skólastarfið og frístundastarfið eigi sameiginlegt og hvað ekki. „Viljum við horfa á hvað bindur það saman að gera sem mest úr sérstöðu hvers fyrir sig?" spurði Oddný.

Hún sagði að margir sæju tækifæri í því að skoða núverandi fyrirkomulag skóla- og frístundastarfs með hliðsjón af meiri samfellu í þjónustu, að það væri ein rödd sem talaði í staðinn fyrir tvær. „Ættum við ekki að skoða það alvarlega hvort við getum ekki þróað skóla- og frístundastarfið okkar áfram þannig að við komumst nær því að ná heildstæðum vinnudegi?" Oddný sagði jafnframt að Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefði lýst miklum áhuga á því að vinna með menntaráði að mótun sameinaðrar starfsemi skóla og frístundaheimila. 

Fólkið á gólfinu enn í sömu störfum

Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi Besta flokksins í menntaráði sagði eðlilegt að margar spurningar vöknuðu meðal starfsfólks um það sem snúi að almennum rekstri, umsýslu og skráningar barna sem dæmi. „Í sannleika sagt höfum við ekki nákvæmt svar enn á borði, það er verið að skoða þessi mál en við erum ekki alveg kominn á þann stað að vera búin að ákveða hvernig þetta eigi að vera. Fólk talar um að það sé of mikill hraði á hlutunum, ég get tekið undir það að sumt er að fara mjög hratt, en þess vegna viljum við sjá þetta sem þróunarverkefni eins konar og byrja í einu hverfi."

Hún lagði jafnframt áherslu á það að starfsfólki frístundaheimilanna yrði áfram boðið sömu störf. Markmiðið væri að breyta yfirstjórninni og stefnumótuninni þannig að hún yrði að einni einingu, en starf fólksins á gólfinu ætti lítið að  breytast.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Open ljósaskilti
Mjög áberandi Open ljósaskilti til sölu. Ljósin blikka og fara ekki framhjá nein...
Útilegudót óskast
Óska eftir að kaupa GAS-hitara, kælibox fyrir 220V/12V ekki mjög lítið og fleira...
Ford Econoline 250 4x4 Til sölu
Árg 91 Húsbíll Skoð 2011 Ek 200 þkm 8cyl Bensín Ssk. Vél yfirfarin fyrir 40þ km ...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Burðarsjöl og burðarpokar í miklu úrvali. Henta börnum frá fæðingu til þriggj...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...