Lokaðist inni þegar bátnum hvolfdi
Sex íslenskar stúlkur voru hætt komnar þegar bátur sem þær voru á hvolfdi við strönd Sihanoukville í Kambódíu í gær. Ein þeirra lokaðist inn á klósetti þegar bátnum hvolfdi, en náði að sparka upp hurðinni og synda undan bátnum.
Stúlkan segir í tölvupósti til mbl.is að um 90 manns hafi verið á bátnum sem var tveggja hæða. Hún segist hafa tekið eftir því strax í uppi ferðar að báturinn vaggaði mikið og ekki hafi þurft meira til en tvær manneskjur löbbuðu yfir á aðra hlið til að hann tæki að halla. Þær hafi reynt að láta þetta ekki trufla sig of mikið, heldur reynt að njóta ferðarinnar, hlustað á tónlist og sumar hafi hoppað út í sjóinn.
Eftir um tveggja tíma siglingu hafi báturinn hallast mjög mikið. „Á þessum tímapunkti sátu fimm okkar á eftir hæð bátsins, en ein okkar var niðri, læst inni á klósettinu. Einhvern vegin tókst henni að sparka upp hurðinni, en klósettið var þá að fyllast af vatni. Henni tókst að synda undan bátnum sem var þá kominn a hvolf. Fljótlega eftir að bátnum hvolfdi komu fiskibátar sem höfðu verið á veiðum í kring og björguðu öllum úr sjónum. Enginn slasaðist alvarlega sem betur fer. Við sluppum allar með skrámur og mar, en vorum vissulega í miklu sjokki þegar við loksins komum á þurrt land.“
Hún segir að það hafi verið mikið lán að þetta gerðist meðan enn var bjart úti. Öryggisbúnaður bátsins hafi verið bágborinn. Enginn sjúkrabíll eða björgunarsveit hafi tekið á móti hópnum þegar hann kom í land. Ekki hafi verið nákvæmlega skráð hverjir voru í bátnum þegar lagt var af stað og því hafi þeir sem stóðu að ferðinni átt í erfiðleikum með að staðfesta að allir hefðu bjargast.
Í frétt AP um atvikið segir að bátnum hafi hvolft vegna þess að drukkið fólk hafi verið að dansa um borð í bátnum. Stúlkan segist ekki hafa orðið var við drukkið fólk um borð þó vera kunni að einhver hafi verið með bjór. Að hennar mati hvolfdi bátnum vegna þess að hann var einfaldlega mjög óstöðugur og að mjög margir farþegar voru á efri hæð bátsins.
Hún segir ástæðu fyrir ferðamenn til að varast bátsferðir í þessum heimshluta. Það sé greinilega algengt að öryggismál í þessum bátum séu ekki í lagi.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Fyrsta útkall Hafdísar
- Mánudagur, 28. mars 2011, Innlent Varð að nota alla sína krafta í átökin
- Fimmtudagur, 31. mars 2011, Innlent Náðu bátnum upp úr sjónum
- Þriðjudagur, 11. október 2011, Innlent Ekkja fær ekki dánarbætur
- Þriðjudagur, 25. október 2011, Innlent Sölku lyft úr sæ
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































