Vigdís fer ekki fram gegn Birki
„Ég hef tekið ákvörðun um að gefa ekki formlega kost á mér," segir Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins. Vigdís tilkynnti þetta á flokksþingi Framsóknarflokksins sem nú fer fram á Hótel Sögu. Enginn hefur enn lýst yfir mótframboði gegn sitjandi formanni og varaformanni Framsóknarflokksins, þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Birki Jóni Jónssyni, en kosið verður á morgun.
Aðspurð hvað hafi ráðið þessari ákvörðun segist Vigdís hafa þurft að vega og meta kostina. „Við erum með tiltölulega nýkjörna forystu, því það var endurnýjað alveg á síðasta flokksþingi. Þau hafa setið í tvö ár þannig að þetta er nú fyrst og fremst kannski að ég vilji gefa þessari forystu tækifæri til að vinna sig upp í fylgi og sanna sig betur."
Þingflokkurinn hafi verið í miklum ólgusjó eins og aðrir stjórnmálaflokkar síðustu ár og því hafi ekki gefist nægilegur tími til að byggja upp flokksstarfið. „Ég geri þetta á þeim sanngirnissjónarmiðum að gefa þeim tækifæri þó að það hafi verið fjölmörg rök fyrir því að ég gæfi kost á mér eins og kynjasjónarmið og að klára endurnýjunina, og að margir telja að flokkurinn færi upp í þingi ef ég verði varaformaður," segir Vigdís. „Það eru líka mörg þung mál fyrir þinginu, sjávarútvegsmálin og evrópumálin og ég tel farsælla að landa þeim heldur en kannski að fólk þurfi líka að huga að harðri kosningabaráttu."
Vigdís telur ólíklegt að ný framboð til formanns- og varaformannsembættana komi úr þessu. „En ég minni jafnframt á það að allir Framsóknarmenn eru í kjöri í hvaða embætti sem kosið er um á flokksþingi," segir Vigdís.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. september 2010, Innlent Kosið um landsdóm kl. 16 á morgun?
- Miðvikudagur, 16. febrúar 2011, Innlent Situr áfram í nefndinni
- Þriðjudagur, 30. nóvember 2010, Innlent Kosningarnar verði ræddar í allsherjarnefnd
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Óbarnvænt Alþingi
- Miðvikudagur, 26. janúar 2011, Innlent Sakaði tölvudeild þingsins um yfirhylmingar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































