Án golfsetta í golfferð
Margir fara yfir veturinn á hlýrri slóðir að leika golf. Myndin er úr myndasafni og tengist ekki efni fréttarinnar beint. Kristinn Ingvarsson
Hópur íslenskra golfleikara sem fór með Iceland Express til Alicante á laugardaginn var hafði ekki enn fengið farangur sinn, allan eða að hluta, nú síðdegis. Farþega í hópnum vantaði ferðatöskur, allar eða sumar, og það sem verra var - suma vantaði golfsettin.
Farþegi sem mbl.is ræddi við, og vildi ekki láta nafns síns getið, taldi að um 20 manns í 50-60 manna golfhópi vanti enn einhverjar ferðatöskur. Hann sagði að nú síðdegis hafi komið flugvél frá Íslandi með hluta af farangrinum. Hann sat fastur úti á flugvelli og var ekki hleypt áfram. Farþegunum var sagt að tollayfirvöld vildu skoða og gegnumlýsa farangurinn áður en hann yrði afhentur.
Kristín Þorsteinsdóttir, talsmaður Iceland Express, sagði að farangurinn sé allur kominn til Spánar og búið að aka megninu af því sem vantaði til farþeganna. „Okkur þykir mjög leiðinlegt að þetta skuli hafa gerst og við höfum gert allt sem við höfum getað til að koma farangrinum til farþeganna,“ sagði Kristín.
„Við erum ekkert farin að fá ennþá,“ sagði farþeginn nú síðdegis. Hann kvaðst ekki vita hve margir hefðu saknað farangurs við komuna til Alicante á laugardag. Auk þeirra um það bil 20 sem voru í hópi golflaranna voru einnig farþegar á leið í sumarhús og annað sem vantaði töskur.
Farþeginn sem rætt var við sagði að tvær flugvélar hafi átt að fara til Alicante á laugardaginn var. Flugvélin sem átti að fara fyrr af stað seinkaði. Sú sem átti að fara síðar fór því á undan.
Farangur farþega úr vélinni sem lagði fyrr af stað mun hafa verið færður yfir í hina flugvélina. Þegar farþegarnir voru sestir um borð í þeirri flugvél sem lagði síðar af stað tilkynnti flugstjórinn á ensku að flugvélin væri ofhlaðin og lét taka 500 kg af farangri frá borði.
„Þegar við komum hingað vantaði mikið af okkar farangri en 40-50 ferðatöskur fóru hring eftir hring á færibandinu. Þær tilheyrðu fólki úr hinni vélinni. Þeim var ekið til fólksins athugasemdalaust í gær,“ sagði farþeginn sem kom með seinni ferðinni. „Það vantar mest úr vélinni sem ég kom með.“
Farþeginn sagði að það væri svekkjandi að tveir dagar skuli fara í vaskinn í golfferð því golfsettin vanti. „Það er algjör handvömm að bjóða fólki í flug og rífa svo farangurinn úr vélinni meðan fólkin situr um borð, fljúga með það til Alicante og óska því svo ánægjulegrar dvalar! Ég skil ekki svona,“ sagði farþeginn.
Farþegar voru með mikinn aukafarangur
Kristín Þorsteinsdóttir, talsmaður Iceland Express, sagði að það rétt að farangur hafi verið skilinn eftir á laugardag. Ástæðan var sú að farþegar voru með svo mikinn aukafarangur. Hún sagði að flugfélagið hafi gert allt sem í þess valdi stendur til þess að koma farangrinum til skila.
Farangurinn sem var skilinn eftir á laugardag fór til Alicante í dag með tveimur flugvélum, önnur þeirra fór héðan eldsnemma í morgun, að sögn Kristínar.
„Það er starfsmaður frá Iceland Express úti á flugvelli og búinn að vera í allan dag. Það er verið að dreifa öllum töskunum og er búið að keyra þær langflestar út. Það er ekkert stopp í tollinum,“ sagði Kristín. Hún sagði að fararstjórar hópsins hafi verið upplýstir um gang mála og í sambandi við starfsmenn Iceland Express á Íslandi í allan dag.





































