„Sjáumst í réttarsalnum“

Frá Delft í Hollandi.
Frá Delft í Hollandi. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Kristilegi demókratarflokkurinn lítur svo á að með einum eða öðrum hætti verði að greiða skuldina. Ef ekki munum við sjást í réttarsal,“ segir Elly Blanksma, þingmaður Kristilegra demókrata, í yfirlýsingu vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins í kvöld.

Orðrétt sagði Blanksma þegar viðbragða hennar við útkomu Icesave-kosninganna var leitað nú síðdegis. Svarið var á ensku og er þýðingin lausleg.

„Þetta er samningur sem ekki er hægt að hverfa frá. Neikvæð útkoma þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu hefur engin áhrif á þennan samning. Ég fylgist með glundroðanum í innanríkismálum með enn meiri undrun. Hann er mjög óviturlegur stjórnmálalega og efnahagslega að auki.

Kristilegi demókrataflokkurinn lítur svo á að með einum eða öðrum hætti verði að greiða skuldina. Ef ekki munum við sjást í réttarsal,“ sagði þingmaðurinn.

Kristilegi demókrataflokkurinn er einn áhrifamesti stjórnmálaflokkur Hollands og á sæti í núverandi minnihlutastjórn.

Hollenska heimasíðu þingmannsins má nálgast hér.

Elly Blanksma
Elly Blanksma
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert