Átak í tannlækningum fyrir börn tekjulágra
Ráðist verður í átaksverkefni um tannlækningar fyrir börn tekjulágra foreldra í sumar.
Þjónustan verður veitt án endurgjalds fyrir börn foreldra sem uppfylla skilyrði um tekjuviðmið, samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í dag.
Velferðarráðuneytið leitaði til tannlæknadeildar Háskóla Íslands um að starfrækja þjónustuna, meðal annars í ljósi þeirrar reynslu sem fékkst þegar deildin rak Hjálparvakt tannlækna árið 2009 í samstarfi við Tannlæknafélag Íslands. Tannlæknadeildin mun leggja til húsnæði og aðstöðu meðan kennsla liggur niðri í sumar og sér einnig um að ráða tannlækna og aðstoðarfólk. Áætlað er að umfang þjónustunnar svari til 8–10 stöðugilda tannlækna í átta vikur.
Réttur til þjónustunnar verður tengdur tekjum foreldra og fjölda barna á framfæri en þjónustan er ætluð börnum yngri en 18 ára. Nánar verður kveðið á um þjónustuna og viðmiðin í reglugerð sem sett verður á grundvelli laga um félagslega aðstoð.
Miðað er við að einstaklingur eigi rétt á þessari þjónustu fyrir barn sitt hafi árstekjur hans verið lægri en 2.900.000 krónur árið 2010. Fyrir foreldra í sambúð verður miðað við að samanlagðar tekjur séu lægri en 4.600.000 krónur.
Tekjuviðmiðið hækkar um 350.000 krónur á ári vegna hvers barns á framfæri fjölskyldunnar umfram eitt, hvort sem í hlut á einstætt foreldri eða foreldrar í sambúð.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. apríl 2011, Innlent Ókeypis tannlækningar
- Föstudagur, 11. nóvember 2011, Innlent Unnt að ljúka verkefninu
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Börn tekjulágra fá tannlæknaþjónustu
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Ekki á að nota börn í kjarabaráttu
- Miðvikudagur, 25. maí 2011, Innlent Sótt um tannlæknaþjónustu fyrir 700 börn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































