Millilagalán ekki forgangskrafa
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfum Almenna lífeyrissjóðsins um að fjárfesting í svokölluðum millilagasjóðum verði metnar sem forgangskröfur í þrotabúi Glitnis.
Almenni lífeyrissjóðurinn fjárfesti í tveimur millilagssjóðum, Intermediate Capital Croup (ICG). Fyrri sjóðurinn var stofnaður árið 2003 og sá seinni árið 2006. Bókfærð eign sjóðsins í ICG sjóðunum er um 1,2 milljarðar. Millilagslán til fyrirtækja liggja á milli hefðbundinna skuldabréfa og hlutabréfa. ICG er stærsti óháði lánveitandi millilagsfjármögnunar í Evrópu.
Almenni lífeyrissjóðurinn var fjárfestir með Glitni samkvæmt sérstökum samningi sem gerður var við bankann. Þegar Glitnir féll í október 2008 óskaði lífeyrissjóðurinn eftir því að færa hlut sinn á sitt nafn. ICG samþykkti þá beiðni en skilanefnd/slitastjórn Glitnis hafnaði því. Almenni lýsti síðan kröfu í þrotabú Glitnis og óskaði eftir að fá eignir sínar í sjóðum ICG afhentar. Slitastjórn Glitnis hafnað kröfunni og vísað ágreiningnum til Héraðsdóms Reykjavíkur.
Í dómi héraðsdóms segir að það sé skilyrði fyrir kröfu um afhendingu eignar úr þrotabúi að eign sú sem krafa beinist að sé í vörslu þrotabús. Ekki verður séð að sérstök skírteini hafi verið gefin út vegna viðskiptanna. Umræddar eignir hafi í samræmi við kaupsamninga aðila verið skráðar á nafn Glitnis sjóðunum og hafi ekki verið færðar sem eignir Glitnis í bókhaldi bankans. Óumdeilt sé að umræddar eignir séu ekki í vörslum Glitnis og því verði að hafna kröfu lífeyrissjóðsins.
Fram kemur í ársreikningi Almenna lífeyrissjóðsins að hann hafi ekki séð ástæðu til þess að endurmeta þessar eignir „þar sem eignarréttindin eru skýr að mati starfsmanna sjóðsins. Þó ber að vekja athygli á því að tapist þetta mál fyrir dómi gæti farið svo að sjóðurinn þyrfti að meta eignirnar eins og aðrar almennar kröfu í þrotabú Glitnis.“
Báðum aðilum var gert að bera sinn kostnað af málarekstrinum. Gera má ráð fyrir að dóminum verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Gagnrýna náið samband við Glitni
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Innlent Banki og lífeyrissjóður í nánu sambandi
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Innlent Kröfu Reykjavíkurborgar vísað frá
- Mánudagur, 29. nóvember 2010, Innlent 900 milljóna krafa kom of seint
- Laugardagur, 1. maí 2010, Innlent Skuldabréf færð niður um 68%
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































