„Erum á réttri leið“

Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunarinnar. stækka

Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunarinnar. mbl.is/Sverrir

mbl.is Jón Pétur Jónsson

„Þessi stofnmæling er ákveðin staðfesting á því að við erum á réttri leið og að þessar aðgerðir sem við lögðum til, og stjórnvöld efndu til og hafa verið að framfylgja varðandi aflaregluna, hafa verið að skila tilætluðum árangri,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunarinnar. 

Stofnvísitala þorsks hefur hækkað fjórða árið í röð og er ástæðan sú að æ meira hefur fengist af stórum þorski.  

Varðandi það hvort kvótinn verði aukinn segir Jóhann að það muni ekki liggja fyrir fyrr en Hafró muni ljúka sinni úttekt í maí/júní.

Fiskurinn fær að vaxa

„Við erum að sjá að þorskstofninn er áfram að styrkjast í kjölfar tillagna Hafrannsóknarstofnunar sem farið hefur verið eftir sl. tvö, þrjú ár. Þetta er að leiða til mun betri nýtingar á árgöngunum en segja má að hafi stefnt í 2007, þegar fyrst var dregið verulega úr þessari sókn,“ segir Jóhann.

Þetta sjáist best á því að hlutfall stærri þorsks hafi hækkað ár frá ári. Fiskurinn fái að vaxa áður en hann sé veiddur, sem sé grundvallaratriði.

„Þetta er í samræmi við það sem sjómenn eru að tala um. Þeir verða varir við meiri fiskgengd,“ segir hann.

Jóhann bendir hins vegar á að árgangar þorsks á milli 2001 og 2007 hafi verið frekar lélegir, sem hafi verið ávísun á minnkandi afla í þorski á komandi árum.

Árin 2008 og 2009 hafi komið tveir meðalsterkir árgangar, og það hafi fengist staðfest í vorrallinu. Hins vegar hafi 2010 árgangurinn, sem nú hafi verið mældur í fyrsta skipti með nokkuð áreiðanlegum hætti, verið slakur.

Jóhann segir að það sé eitthvað sem menn verði að gera ráð fyrir, enda áraskipti á styrk árganganna.

„Þegar það var dregið verulega fyrst úr aflanum 2007 þá gekk sú aðgerð út á það að fá stærri hrygningarstofn og sérstaklega meiri aldursbreidd,  hærra hlutfall af eldri fiski í hrygningarstofninn, til þess að auka líkur á betra klaki,“ segir Jóhann. Menn séu að sjá þessa aukningu í eldri fiski.

„Við erum að leyfa fiskinum að taka út vöxt. Við erum að fá betri nýtingu árganganna en ella hefði verið, það er engin spurning. Við erum líka að fá betri aldursbreidd í stofninn, sem á að auka líkur á betri nýliðun til langs tíma litið.“

Á réttri leið

Haldi þetta áfram með þessum hætti, þá fari verulega að rætast úr. Menn séu auðvitað að sjá mjög góða aukningu í heildarstofnvísitölunni.

„Segja má að það sé vísbending um það að þegar við ljúkum okkar vinnu í vor, að þá muni það leiða til þess að stofnmatið gefi tilefni til heldur aukinna aflaheimilda á næsta ári. Það liggur hins vegar ekki fyrir fyrr en við verðum búnir að  ljúka okkar úttekt núna í maí/júní.“

Þá segir Jóhann að það sé ekki síður mikilvægt og ánægjulegt að meðalþyngdirnar séu að vaxa og lagast verulega. Jóhann bendir á að loðnan hafi verið að braggast mikið á liðnu árum og sé orðin stærri hlutdeild í fæðu þorsksins.

„Þetta festir okkur í þeirri trú að við séum á réttri leið,“ segir Jóhann að lokum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

Í gær, 17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HairOff háreyðingavörur; sársaukalaus og örugg háreyðing !
HairOff vörurnar fjarlægja hár á einfaldan, öruggan og sársaukalausan hátt ! Got...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
Hvítt rimlarúm á hjólum til sölu!
Fallegt hvítt rimlarúm á hjólum til sölu. Hægt að lækka aðra hliðina niður og 2 ...
ÁRSREIKNINGAR LÖGAÐILA
Ársreikningar lögaðila (ehf.) Færsla á bókhaldi, ...
 
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...