Fréttaskýring: Fjörkippir Framsóknarflokks
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl
Tillagan um að hætta viðræðum og aðlögunarferli að ESB var felld með 169 atkvæðum gegn 164, þannig að mjög mjótt var á mununum. Tillagan um að Framsóknarflokkurinn telji hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins var hins vegar samþykkt með miklum meirihluta atkvæða, eða 84% gegn 16%.
ESB-sinnar niðurlægðir
Tillaga um að þjóðin eigi að taka upplýsta ákvörðun um stöðu Íslands í Evrópu, að undangengnum aðildarviðræðum var kolfelld með 213 atkvæðum gegn 112. Sú tillaga er sögð runnin undan rifjum Evrópusinna í flokknum, eins og þeirra Sivjar Friðleifsdóttur og Guðmundar Steingrímssonar.Framsóknarmenn, sem rætt hefur verið við, telja að þessi niðurstaða hafi hleypt illu blóði í þau Siv og Guðmund og þau hugsi sér jafnvel til hreyfings úr Framsóknarflokknum, eftir að hafa verið „niðurlægð á flokksþinginu,“ eins og Evrópuandstæðingar úr Framsóknarflokknum orðuðu það í gær og fyrradag. Siv og Guðmundur hafi einfaldlega lesið landslagið vitlaust og gengið út frá því að sjónarmið þeirra nytu mun meira fylgis en raun varð á.
Í þessu ljósi skoða margir framsóknarmenn ummæli Sivjar Friðleifsdóttur, í morgunútvarpi Rásar 2 í gærmorgun, en þar sagði hún m.a. að hún vildi að Framsóknarflokkurinn tæki sæti í ríkisstjórninni. „Það þarf að taka á nokkrum málum og ég tel að Framsóknarflokkurinn sé í lykilaðstöðu til að gera það.“
Framsóknarmenn virðast ekki uppvægir vegna þessarar yfirlýsingar Sivjar. Hún hafi beinlínis farið af flokksþinginu með skert umboð frá því sem áður var þar sem sjónarmiðum hennar og Guðmundar Steingrímssonar hafi í grundvallaratriðum verið hafnað. Það sé því nánast landlaus þingmaður sem sé að reyna að leita skjóls í Evrópufangi Samfylkingarinnar. Hið sama eigi við um Guðmund, sem hafi ekki einu sinni látið sjá sig á flokksþinginu á sunnudag, og Siv hafi einungis haft þar örstutta viðkomu á þeim degi til þess að vera viðstödd afhendingu jafnréttisverðlauna flokksins.
Örfáir hótað úrsögn
„Það hafa örfáir aðilar í kringum þau Siv og Guðmund hótað að segja sig úr flokknum og mér kæmi satt best að segja ekkert á óvart að þau Siv og Guðmundur ákvæðu að ganga til liðs við Samfylkinguna. ESB-aðildarsinnar í Framsóknarflokknum eru hávær hópur, en hann er afskaplega lítill. Það kom glöggt í ljós á flokksþinginu,“ segir þingmaður Framsóknarflokksins.Annar þingmaður segir flokksþingið hafa verið ljómandi vel heppnað og hann telur að framsóknarmenn hafi flestir horfið heim að loknu þingi ánægðir og í baráttuhug.
„En ég tel fjarri lagi að nokkuð á flokksþinginu hafi gefið til kynna að Framsóknarflokkurinn væri reiðubúinn til þess að ganga til liðs við þessa handónýtu ríkisstjórn Samfylkingar og VG. Vissulega vill Framsóknarflokkurinn komast í ríkisstjórn en það verður ekki nema að undangengnum kosningum,“ segir hann og bætir við: „Þessi orð Sivjar í útvarpinu eru ekkert annað en óskhyggja fallins málstaðar. Leið hennar og Guðmundar var hafnað með afgerandi hætti á flokksþinginu. Okkur hefur sum grunað lengi að Össur Skarphéðinsson og fleiri þingmenn Samfylkingarinnar hafi verið að hræra í þeim Siv og Guðmundi og reyna að laða þau yfir til sín. Í því ljósi ber að skoða yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur frá því um helgina að hún vilji skoða hvort styrkja beri ríkisstjórnina. Það getur vel farið svo að þau Siv og Guðmundur fari yfir til Samfylkingarinnar en Framsóknarflokkurinn er ekki á leið inn í þessa ríkisstjórn. Það fullyrði ég.“ Framsóknarmaður úr grasrótinni segir að sem áhugamaður um pólitík hafi hann í langan tíma fylgst með því hvernig þau Siv og Guðmundur hafi oft verið eins og aukaliðsmenn ríkisstjórnarinnar. Það hafi gerst í ESB-afgreiðslu þingsins, það hafi gerst í Icesave og það hafi gerst í stjórnlagaráðsmálinu. Það sé ugglaust tímabært að þau leiti til nýrra heimkynna og þótt þau hverfi úr Framsóknarflokknum sé engin hætta á klofningi. Þá útilokar hann ekki þann möguleika að Siv og Guðmundur fari einhverja millileið, eins og að lýsa því yfir að þau hyggist verja ríkisstjórnina falli. Aðrir telja að slíkt sé harla ólíklegt og vísa til þess að þegar stuðningur Sivjar sé annars vegar, kosti hann áreiðanlega eins og einn ráðherrastól.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist hvorki samband við Siv Friðleifsdóttur né Guðmund Steingrímsson í gær.
Framsókn ekki á leið í ríkisstjórn Samfylkingar og VG
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að það sé fjarri öllu lagi að Framsókn sé á leið inn í ríkisstjórn Samfylkingar og VG.Sigmundur Davíð var spurður álits á þeim ummælum Sivjar Friðleifsdóttur að hún vilji að Framsóknarflokkurinn taki sæti í ríkisstjórn Samfylkingar og VG og styrki hana:
„Þessi umræða hefur oft komið upp áður, um að við framsóknarmenn kynnum að koma inn í ríkisstjórnina, og hún hefur iðulega farið af stað þegar ríkisstjórnin hefur verið í sem mestum vanda. Það hefur aldrei verið neinn fótur fyrir slíkri umræðu og það sama á við nú,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í samtali við Morgunblaðið frá Noregi í gær.
„Það kæmi auðvitað ekki til greina að við færum inn í þessa ríkisstjórn til þess að styrkja hana í þeirri stefnu sem hún rekur. Menn þyrftu að byrja alveg frá grunni og ég sé ekki hvernig það ætti að vera hægt öðru vísi en að fara í gegnum kosningar fyrst, áður en við færum að huga að því að fara með þessum flokkum í ríkisstjórn,“ sagði Sigmundur Davíð ennfremur.





































