Ásmundur Einar úr þingflokknum

Ásmundur Einar Daðason. stækka

Ásmundur Einar Daðason. mbl.is/Kristinn

Bréf frá Ásmundi Einari Daðasyni, alþingismanni, var lesið í upphafi þingfundar á Alþingi í þar. Það tilkynnti Ásmundur Einar að hann hefði sagt sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs með tölvupósti í morgun og myndi starfa áfram sem óháður þingmaður.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Stelpur forrituðu á kvenréttindadaginn

17:31 „Stelpurnar eru snillingar og standa sig ótrúlega vel,“ segir Erla María Tölgyes, starfsmaður Skema. Í dag sóttu 20 stelpur á aldrinum 10 til 13 ára forritunarnámskeið á vegum fyrirtækisins þar sem þær lærðu meðal annars að forrita tölvuleiki. Námskeiðið fór fram í Háskólanum í Reykjavík. Meira »

Ók bifhjóli í vímu á ofsahraða

Er lögregla hóf eftirför veittu lögreglumenn því athygli að ákærði jók hraða bifhjólsins verulega, að ...
17:00 Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi sem var ákærður fyrir að hafa ekið bifhjóli á ofsahraða og undir áhrifum fíkniefna án þess að sinna stöðvunarmerkjum lögreglu. Meira »

Dýrir tólf pakkar af vindlingum

Vindlingar.
16:54 Hæstiréttur hefur staðfest átta mánaða fangelsi yfir karlmanni sem braut sér leið inn í söluturn í Reykjanesbæ í september 2012 og stal þaðan tólf pökkum af vindlingum. Refsinguna fékk hann raunar ekki aðeins fyrir það eitt því með broti sínu rauf maðurinn reynslulausn sem dæmd var upp. Meira »

Stofnaði lífi sonarins ekki í hættu

Úr umferðinni.
16:48 Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm yfir karlmanni sem var ákærður fyrir að aka undir áhrifum áfengis og með akstrinum stofnað lífi og heilsu þriggja ára sonar síns, sem var farþegi í bínum, í hættu á ófyrirleitinn hátt. Meira »

Konur 42% í nefndum og ráðum

Fjármálaráðuneytið.
16:29 Breyting hefur orðið til batnaðar varðandi hlut kvenna í nefndum og ráðum sem skipaðar eru af fjármála- og efnahagsráðherra samkvæmt fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Þar kemur fram að á árinu 2003 hafi konur verið 30% sem sátu í nefndum á vegum ráðherra en á síðasta ári hafi hlutfallið verið komið í 42%. Meira »

„Munum ekki láta staðar numið“

Frá Alþingi.
16:08 Samhljómur var meðal þeirra þingmanna sem tóku til máls í sérstakri umræðu um jafnlaunaátak og kjarasamninga á Alþingi í dag. Rauði þráðurinn í umræðunni var kynbundinn launamunur og voru þingmenn allir á því máli að betur þurfi að gera til þess að jafnrétti verði náð. Meira »

Sveik út fé af Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður
16:40 Hæstiréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisdóm yfir 24 ára karlmanni en hann var sakfelldur fyrir hylmingu, skjalafals og fjárdrátt. Maðurinn veitti 2,1 milljón króna viðtöku á bankareikningi sínum, sveik út 19,8 milljónir og dró sér 12 milljónir. Hann var þó ekki talinn skipuleggjandi brotanna. Meira »

Auki veg kvenna í kvikmyndum myndskeið

bleikir steinar
16:19 Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands, voru afhent í dag. Félög í kvikmyndaiðnaði fengu steinana en Femínistafélagið hvetur til þess að gerðar verði fleiri kvikmyndir með konum í aðalhlutverki. Meira »

Íslendingar strandaglópar í New York

Fólkið átti flug með fyrirtækinu Icelandair.
15:56 Hópur Íslendinga situr nú fastur á JFK flugvelli í New York. Hildur Ásgeirsdóttir, einn Íslendinganna, er stödd á vellinum ásamt þremur börnum sínum og segir upplýsingaflæði til farþeganna afar takmarkað. Fólkið átti flug til Íslands klukkan 14 að staðartíma í gær með Icelandair. Meira »

Gjaldtaka við komu og brottför

„Þeir staðir sem nú þegar liggja undir gríðarlegu álagi geta ekki beðið eftir framlagi úr ...
15:51 „Með breiðum flötum gjaldstofni er verið að segja að Ísland sé land náttúrufegurðar. Allir sem koma til og frá landinu eiga að varðveita það,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, en félagið samþykkti í gær bókun þar sem afstaða er tekin til gjaldtöku á vinsæla ferðamannastaði. Meira »

Skuldarar fá leiðréttingu

Frosti Sigurjónsson.
15:44 „Þetta á ekki að trufla fasteignamarkaðinn. Mikilvægt er að fram komi að þeir sem hafa orðið fyrir ófyrirséðri höfuðstólsbreytingu vegna hrunsins fá leiðréttingu,“ segir Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Meira »

Ráðherrar ræddu skattamál og ESB

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Frederik Reinfeldt á fundi með blaðamönnum í dag.
15:34 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, gerði forsætisráðherra Svíþjóðar, Frederik Reinfeldt, grein fyrir áherslum nýrrar ríkisstjórnar varðandi efnahagsmál, m.a. einföldun skattkerfis og úrræða fyrir skuldsett heimili á fundi þeirra í Stokkhólmi. Meira »

„Mjög dapurlegur dagur“

Mótmælendur í Hvalfirði er fyrsta langreyðurin kom á land í gær.
15:27 „Þetta er mjög dapurlegur dagur,“ segir Robbie Marsland, hjá Alþjóða dýraverndunarsjóðnum, IFAW, um þær fréttir að fyrstu langreyðarnar hafi nú verið veiddar við Íslandsstrendur. Meira »

Bótaskylt vegna Inspired by Iceland

15:10 Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða auglýsingastofunni J&L ehf. rúmar fimm milljónir í skaðabætur vegna þátttöku auglýsingastofunnar í Inspired by Iceland-verkefninu. Meira »

Sýknaðir af nauðgun í Hæstarétti

13:57 Hæstiréttur sýknaði í dag tvo karlmenn sem Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi fyrir nauðgun í ársbyrjun. Niðurstaða héraðsdóms er gagnrýnd og segir í dómi Hæstaréttar að ákæruvaldinu hafi mistekist að sanna sekt mannanna. Fimm dómarar Hæstaréttar dæmdu í málinu en einn þeirra skilaði sératkvæði. Meira »

Forsætisráðherra spurður út í Snowden

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sést hér ræða við blaðamenn ásamt Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, í ...
15:19 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir í samtali við AFP-fréttastofuna að aðstoðarmaður bandaríska uppljóstrarans Edwards Snowden hafi átt í óformlegum viðræðum við íslenska embættismenn. Líkt og fram hefur komið hefur Snowden lýst áhuga á að sækja eftir pólitísku hæli á Íslandi. Meira »

Tölvuþrjótar herja á viðskiptavini Íslandsbanka

14:07 Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinum. Efni póstsins (subject) er: „Staðfesting... reiknings Alerts“. Meira »

Rannsóknarnefnd skoðar vél Ómars

Flugvél Ómars flatmagar við Sultartangalón
13:54 „Þegar ég kom að þessu með myndavél þá var þyrlan búin að krækja í vélina,“ segir Aron Steinn Guðmundsson, starfsmaður Ístaks við Búðarhálsvirkjun, en hann tók myndir af því í dag þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flutti flugvél Ómars Ragnarssonar, sem brotlenti við Sultartangalón á þjóðhátíðardag. Meira »
TIL SÖLU Citroen
Citroen Xsara Picasso ssk. 2006, ek. 66 þ. Heilsársdekk. Skoðaður 4/14. Bíllin...
Njóttu veðurblíðunnar á Húsavík
Rúmgóð íbúð til leigu. Rúm fyrir allt að 6 manns, sólarhrings- helgar- eða vikul...
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin okkar er armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 7.500,- Góð d...
Hermannabuxur
Hermannabuxur til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
 
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi

Reykjavíkurborg Umverfis- og skipulagss...
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti og kórstjóri Laus er s...
Skipulagsmál í rangárþingi

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ...
Starfsmaður óskast í 50% starf
Skrifstofustörf
Dýraverndarsamband Íslands leitar að st...