Bætur vegna embættisveitingar
Hæstiréttur hefur dæmt íslenska ríkið og Árna M. Mathiesen, fyrrverandi ráðherra, til að greiða umsækjanda um héraðsdómaraembætti hálfa milljón króna í miskabætur.
Staðfesti Hæstiréttur þannig niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrir ári um að Árni og ríkið skyldu greiða Guðmundi Kristjánssyni miskabætur fyrir vegna þess að Þorsteinn Davíðsson var skipaður héraðsdómari á Norðurlandi eystra undir lok ársins 2007. Árni skipaði í embættið sem settur dómsmálaráðherra.
Guðmundur
sótti um embætti héraðsdómara haustið 2007 ásamt fjórum öðrum. Dómnefnd
taldi, að allir umsækjendurnir væru hæfir. Þrír voru taldir mjög vel
hæfir, þar á meðal Guðmundur, og tveir voru taldir hæfir, þar á meðal
Þorsteinn.
Guðmundur höfðaði skaðabótamál gegn Árna og ríkinu og krafðist 5 milljóna króna í miskabætur og einnig að viðurkennt yrði að Árni og ríkið væru skaðabótaskyld. Bæði héraðsdómur og Hæstiréttur höfnuðu kröfu um skaðabætur á þeirri forsendu, að ekki lægi fyrir að Guðmundur hefði fengið embættið þótt valið hefði staðið um þá sem taldir voru mjög vel hæfir.
Hæstiréttur segir hins vegar, að þótt Árni hafi ekki látið orð falla til að vega að persónu eða æru Guðmundar verði ekki fram hjá því litið að Árna mátti vera ljóst að þessar gerðir hans gætu að ófyrirsynju bitnað á orðspori Guðmundar og orðið honum þannig að meini. Þrátt fyrir það hafi Árni gengið fram án þess að skeyta nokkuð um þessa augljósu hættu.
Telur Hæstiréttur að því sé fullnægt skilyrðum um að dæma Guðmundi miskabætur. Héraðsdómur hafði dæmt Árna og ríkið til að greiða Guðmundi 3,5 milljónir króna í bætur en Hæstiréttur lækkaði bæturnar í 500 þúsund.
Fimm dómarar dæmdu í málinu en tveir þeirra, Árni Kolbeinsson og Markús Sigurbjörnsson, skiluðu séráliti og töldu að sýkna ætti Árna og ríkið af kröfu um miskabætur.
Innlent »
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Ég reyni að lifa lífinu til fulls
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Árni og ríkið bótaskyld
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Árni áfrýjar dóminum
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Fyrrverandi yfirlæknir fær bætur
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Fær bætur vegna kyrrsetningar
- Fimmtudagur, 12. maí 2011, Innlent Fær bætur vegna gæsluvarðhalds
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































