Fangelsi fyrir kannabisrækt

Hæstiréttur hefur dæmt tvo 27 ára gamla karlmenn í 14 mánaða fangelsi hvorn fyrir að hafa staðið að umfangsmikilli ræktun á kannabisplöntum í sölu- og dreifingarskyni. Héraðsdómur hafði áður dæmt mennina í 20 mánaða fangelsi.

Hæstiréttur staðfesti jafnframt þá niðurstöðu héraðsdóms að hafna kröfu lögreglu um að gera upptækar tæpar 12 milljónir króna og 7265 evrur, sem lagt var hald á við rannsókn málsins.

Mennirnir voru dæmdir fyrir að hafa í ágúst 2008 sett upp mjög stóra ræktunaraðstöðu fyrir allt að 500 kannabisplöntur í útihúsi í Þykkvabæ. Lögregla fann verksmiðjuna síðan ári síðar. Þá voru þar 493 kannabisplöntur sem samtals vógu 68 kíló, 2,7 kíló af kannabislaufum og 10,98 grömm af hassi.

Mennirnir hafa báðir hlotið dóma áður fyrir ýmis brot, þar á meðal fíkniefnabrot. Í bankahólfi annars þeirra fundust 11,8 milljónir króna í seðlum og 7265 evrur. Lögregla krafðist þess að féð yrði gert upptækt þar sem það væri hagnaður af fíkniefnasölu.

Í héraðsdómi sagði, að þótt skýringar mannsins á tilurð fjárins kynnu að virðast ótrúverðugar og lúti meira og minna allar að skattundanskotum og fjárhættuspilum, þá breytti það ekki því, að engar sönnur hefðu verið færðar á það að ávinningur hafi orðið af brotinu eða að fjárins hafi að öðru leyti verið aflað með fíkniefnasölu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert