50 þús. 1. maí og meira síðar

Stíf fundarhöld eru í húsnæði Ríkissáttasemjara í dag.
Stíf fundarhöld eru í húsnæði Ríkissáttasemjara í dag. mbl.is/Kristinn

Skýrast mun upp úr hádegi hvort samið verður á vinnumarkaði til þriggja ára eða til sex mánaða. Verði skammtímasamningur ofaná fá launþegar 50 þúsund króna eingreiðslu 1. maí og væntanlega eitthvað til viðbótar í sumar eða haust.

Fulltrúar ASÍ og SA sitja þessa stundina á fundi með fulltrúum ríkisstjórnarinnar en það ræðst af svörum stjórnvalda hvort hægt verður að skrifa undir kjarasamning til þriggja ára síðdegis í dag. Forystumenn samtakanna á vinnumarkaði hafa lýst því yfir að niðurstaðan eigi að liggja fyrir klukkan 17:15 í dag.

Eftir hádegi munu samninganefndir ASÍ og SA funda sitt í hvoru lagi, fara yfir stöðuna og leggja mat á hvort svör ríkisstjórnarinnar duga til að ganga frá langtímasamningi. Ef þau duga ekki til verður gengið frá skammtímasamningi þar sem kveðið verður á um eingreiðslur til launþega og næstu sex mánuðir notaðir til að reyna að fá ríkisstjórnina til að koma til móts við kröfur SA og ASÍ um aðgerðir í málum sem útaf standa s.s. í atvinnumálum og áherslu SA á málamiðlun í  sjávarútvegsmálum.

Verði aðeins samið til sex mánaða verða öll önnur kjaramál sem þegar hefur samist um á vinnumarkaði, s.s. sérmál einstakra aðildarsambanda og félaga og sameiginleg mál sem samkomulag er um milli SA og ASÍ, látin bíða þar til tekst að ganga frá langtímasamningum síðar á árinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert