Hvað er að gerast hér?

Ásta Ragnheiður Jóhannsdóttir. stækka

Ásta Ragnheiður Jóhannsdóttir. Ómar Óskarsson

Til orðaskipta kom milli Ástu Ragnheiður Jóhannesdóttur, forseta Alþingi, og Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, þegar Ólína vildi ræða um fundarstjórn forseta.

Þegar umræðum um störf þingsins var lokið á Alþingi óskaði Ólína að ræða fundarstjórn forseta og kvartaði yfir því að hafa ekki fengið að komast að í umræðunni til að svara ásökunum, sem hefðu verið bornar á hana.

Þegar Ólína ætlaði síðan að rekja þær ásakanir, sem hún sagði að Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefði komið með, greip Ásta Ragnheiður fram í fyrir henni og sagði að ekki mætti fara fram efnisleg umræða um önnur mál þegar rætt væri um fundarstjórn forseta.

Þegar Ólína ætlaði að nýju að rekja ummæli Ragnheiðar Elínar sló Ásta Ragnheiður í bjöllu sína.  „Ég ætla að vona, frú forseti, að við þurfum ekki að standa hér og endurtaka bjöllusólóið frá því sumarið 2009 þegar ég var rekin úr ræðustóli," sagði Ólína þá. 

Þegar Ásta Ragnheiður sagði, að ræðutími Ólínu  væri liðinn sagðist Ólína víkja úr ræðustóli en gera alvarlegar athugasemdir við þessa valdbeitingu forseta. „Því hér hefur þessi liður verið tilefni efnislegra umræðna í skipti eftir skipti þar sem stjórnarandstaðan hefur haft aðkomu að efnislegum umræðum hér og ég fæ ekki að ljúka máli mínu og fæ ekki að velja mín eigin orð."

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, sagðist vilja gera alvarlegar athugasemdir við fundarstjórn forseta, að leggja það á þingheim að þurfa að hlusta á allt það niðurrifstal stjórnarandstöðunnar, sem menn hefðu orðið vitni að, en taka ekki tillit til óska starfandi þingflokksformanns VG, um að fá að taka þátt í umræðu um störf þingsins.

Ásta Ragnheiður sagðist hafa farið að þingsköpum og gefið þingmönnum orðið eftir þeirri röð sem þeir báðu um það.

Ólína óskaði síðan eftir því að fá að bera af sér sakir og sagði að Ragnheiður Elín hefði borið á sig að hún hefði talað sjávarútvegsmál í ágreining. Sagði Ólína, að fáir þingmenn hefðu gengið lengra en hún í að skýra sjónarmið sín og verið í opinberri umræðu um málaflokk. Því hefði verið svarað með dæmafáum persónuofsóknum.

Nú sló Ásta Ragnheiður í bjölluna og sagði ekki unnt að fara í efnislegar umræður  undir þeim dagskrárlið, að bera af sér sakir.

„Hvað er að gerast hér?" spurði Ólína þá og óskaði eftir rökstuðningi hvers vegna henni væri ekki heimilt að bera af sér sakir. Þá sagði Ásta Ragnheiður að ræðutími Ólínu væri liðinn fyrir 20 sekúndum. 

Þeir Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku til varna fyrir Ástu Ragnheiði. Sagði Guðlaugur Þór að Lilja Rafney hefði viljað ritskoða dagskrárliðinn störf þingsins og koma í veg fyrir að þingmenn tali um eitthvað sem ríkisstjórninni þyki óþægilegt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
KEBEK NAMA HEILSÁRSDEKK
Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. ...
NUDD EF ÞÚ ERT MEÐ VÖÐVABÓLGU.
SLEN OG SVEFNLEYSI STAFAR OFT AF VERKJUM Í SKROKKNUM. NUDD GETUR BÆTT ÁSTANDIÐ. ...
Palomio Yearling 10 feta fellihýsi
Palomio Yearling 100 fellihýsi Árgerð 2007 10 feta Fortjald, svefntjöld, sóla...
 
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...