Lilja gagnrýndi spunafréttir

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir.

Lilja Mósesdóttir, óháður þingmaður, sagði á Alþingi í dag að uppi væri mikil spunafréttamennska í fjölmiðlum, sem hefðu verið hallir undir valdastéttina á hverjum tíma. Þessi spunafréttamennska gengi út á að snúa út úr orðum þeirra, sem á einhvern hátt ógnuðu ríkjandi valdhöfum.

„Í gærkvöldi bjó Stöö 2 til þá  spunafrétt, að ég íhugi að stofna nýjan stjórnmálaflokk til höfuðs VG þegar ég sagðist aðeins vera að skoða ýmsa  möguleika í stöðunni," sagði Lilja

Þá sagði hún að í dag væru allir helstu fjölmiðlar að velta fyrir sér menntun Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, en hann hefði lagt stund á þverfaglegt nám við Oxford-háskóla. Eins og svo oft gerðist þegar komi að því að þýða erlend heiti á þverfaglegu námi hafi Sigmundur Davíð ekki fundið heiti sem nær yfir fjölbreytnina í náminu og því notað fleiri en eitt heiti og sé því óbeint sakaður um að hafa sagt ósatt um menntun sína.

„Það mætti saka ansi marga íslenska menntamenn  um ósannsögli þegar þeir hafa reynt að finna viðeigandi heiti á erlent þverfaglegt nám sem þeir hafa lagt stund á," sagði Lilja.

Sagði hún að tilgangurinn með vangaveltum um menntun Sigmundar Davíðs væri að draga í efa trúverðugleika stjórnmálamanns sem hefði áunnið sér virðingu almennings í Icesave-málinu.

Frétt Stöðvar 2

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert