ASÍ hvarf af vettvangi
Gylfi Arnbjörsson og Vilhjálmur Egilsson í Karphúsinu, áður en slitnaði upp úr viðræðum í kvöld. mbl.is/Golli
Samtök atvinnulífsins, SA, segjast í yfirlýsingu hafa lagt fram tillögu til umræðu um sameiginlegan rökstuðning fyrir skammtímasamningi og jafnframt boðið að ASÍ legði fram eigin tillögu ef ekki væri falllist á tillögu SA. Því hafi verið hafnað og fulltrúar ASÍ horfið af vettvangi í Karphúsinu rétt fyrir miðnætti.
Segjast SA hafa boðið ASÍ að gera kjarasamning til skemmri tíma sem fylgdi 50 þúsund króna eingreiðsla til launþega í byrjun maí með möguleika á þremur 16.700 króna greiðslum til viðbótar í lok júní, júlí og ágúst, samtals kr. 50 þúsund.
„Samningsaðilar hafa undanfarna mánuði stefnt að gerð þriggja ára samnings sem byggði tilteknum efnahagslegum markmiðum um aukinn hagvöxt, fjölgun starfa, minna atvinnuleysi, verulega auknar fjárfestingar í atvinnulífinu, m.a. í orku- og iðnaðarverkefnum og innviðum samfélagsins.
Samtök atvinnulífsins hafa lagt á það áherslu að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni og starfsumhverfi fyrirtækja verði bætt verulega svo fyrirtæki stór og smá í öllum greinum geti farið að ráða fólk á ný og auka umsvif sín.
Samtök atvinnulífsins eru tilbúin til að leggja mikið af mörkum til að gera kjarasamninga til lengri tíma. Að mati aðila vinnumarkaðarins er aðkoma ríkisstjórnarinnar að samningunum nauðsynleg en því miður hafa ekki enn reynst forsendur fyrir langtímasamningi þar sem ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram trúverðugar áætlanir um að auka hagvöxt á næstu árum,“ segir í yfirlýsingu frá Samtökum atvinnulífsins, en á vef samtakanna hafa m.a. verið birt drög að samkomulagi við ASÍ.
Nýjar viðræður hafa ekki verið boðaðar í Karphúsinu og því algjör óvissa uppi um endurnýjun kjarasamninga á vinnumarkaði.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Málamynda kjarabætur -
Tryggvi Þórarinsson Kjarabætur eiga að snúast um lækkun skatta fyrst og fremst. -
Sigurður Antonsson Eru áhrif ASÍ, SA og Útvarps Sögu hættuleg lýðræðinu? -
Reynir W Lord Kvótakóngar hóta þjóð!!!! hvað er að þessari mynd -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir LÍÚ -
Þorgeir Samúelsson Til hvers að vera með ASÍ og Samtök atvinnulífsins?
Innlent »
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Ég reyni að lifa lífinu til fulls
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Innlent Bjóða 1% til viðbótar
- Laugardagur, 16. apríl 2011, Innlent Tala um gíslatöku LÍÚ
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Krefjast svara frá SA í dag
- Sunnudagur, 3. apríl 2011, Innlent Boðaðir á fund sjávarútvegsráðherra
- Miðvikudagur, 26. janúar 2011, Innlent Hætta öllum þreifingum við SA
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































