Vilja stríð þegar friður er í boði

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, við samningaborðið. stækka

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, við samningaborðið. mbl.is/Golli

 

Samtök atvinnulífsins segja að Alþýðusambandið hafi hafnað algjörlega bæði áframhaldandi vinnu við atvinnuleiðina og sameiginlegum rökstuðningi jafnvel þótt sérstaklega væri óskað eftir tillögu frá SA um hvernig slíkur rökstuðningur mætti vera.

Þetta segir í yfirlýsingu frá Samtöku atvinnulífsins um gang kjaraviðræðna í gær, en þeim lauk án þess að samningar tækjust.

„Á undanförnum mánuðum hafa Samtök atvinnulífsins barist fyrir því að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni sem felst í því að auka fjárfestingar, skapa störf, minnka atvinnuleysi og auka tekjur. Samhliða þessu yrðu gerðir kjarasamningar til þriggja ára til þess að tryggja vinnufrið, kaupmátt og eyða óvissu.

 

Í gær stöðvuðust viðræður á vinnumarkaðnum um atvinnuleiðina vegna þess að ríkisstjórnin treysti sér ekki til þess að taka á lykilmálum. Sátt um sjávarútveg, eina helstu útflutningsgrein landsmanna og kjarnagrein byggðar víða um land, er nauðsynleg til þess að fjárfestingar hefjist í greininni á ný og óvissu um rekstrarforsendur fyrirtækjanna sé eytt. Innan SA og aðildarfélaga þeirra er full samstaða um þýðingu sjávarútvegsins og nauðsyn sáttar um hann. Ríkisstjórnin hefur hingað til lítt sem ekkert vilja ræða við forsvarsmenn sjávarútvegsins um starfsskilyrði greinarinnar.

 

Sprengju var varpað inn í viðræður aðilavinnumarkaðarins við stjórnvöld með frumvarpi um 30 ára nýtingartíma orkufyrirtækja á jarðvarma sem hækkar kostnað og þar með orkuverð án þess að samfélagið hafi af því nokkurn hag. Áform ríkisstjórnarinnar um orkuuppbyggingu ganga of hægt þótt vissulega hafi viðhorf hennar verið að breytast til réttrar áttar.Mikilvægum samgönguframkvæmdum á Suðvesturlandi hefur verið klúðrað þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi lofað skjótum framgangi þeirra í stöðugleikasáttmálanum frá júní 2009.

 

Þegar viðræðum um atvinnuleiðina lauk var hafist handa um gera samkomulag til skemmri tíma með 50 þúsund króna eingreiðslu auk þriggja 16.700 króna viðbótargreiðslna yfir sumarmánuðina ef ekki tækist að koma atvinnuleiðinni í gegn.

 

Samtök atvinnulífsins vildu útfæra skammtímasamkomulag þannig að aðilar héldu áfram vinnu við atvinnuleiðina og reyndu til þrautar að komast á þá braut. Í því skyni var nauðsynlegt að fram kæmi sameiginlegur rökstuðningur fyrir samkomulaginu sem gæti hjálpað til við að ná settu marki. Alþýðusambandið hafnaði algjörlega bæði áframhaldandi vinnu við atvinnuleiðina og sameiginlegum rökstuðningi jafnvel þótt sérstaklega væri óskað eftir tillögu frá sambandinu um hvernig slíkur rökstuðningur mætti vera.

 

Leið Alþýðusambandsins vegna skammtímasamningsins var sú að ljúka honum í flýti og hefja svo miklar deilur um hverjum væri um að kenna að þriggja ára samningur með atvinnuleiðinni hefði ekki náðst. Slíkt hefði aukið enn á upplausn og óvissu. Ríkisstjórnin hefur verið söm við sig og vill viðhalda ófriði um sjávarútveg, orkumál og aðra uppbyggingu þrátt fyrir að friður sé í boði.

 

Samtök atvinnulífsins hafa lagt sig fram um að ná vinnufriði á grundvelli atvinnuleiðarinnar sem er eina raunhæfa leiðin út úr kreppunni. Ennþá er það verkefni framundan til að leysa og Samtök atvinnulífsins vilja ekki gefast upp við að ná því fram sem er landi og þjóð fyrir bestu.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Rúta
Rúta Iveco 20 farþega til sölu. Nýskráð 11/07 ekin 105.000 km. Upplýsingar í ...
SKRIFBORÐSSTÓLL GOTT VERÐ
er með nokkra góða stóla verð frá 5 þús sími 869-2798...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
Varahlutir í MITSUBISHI PAJERO o.fl.
Eigum notaða varahluti í flesta Mitsubishi bíla svo sem Pajero, L200, Lancer, Ga...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...