Hefja áreiðanleikakönnun vegna HS Orku

mbl.is/Ómar

Viðræðunefnd, sem hópur lífeyrissjóða skipaði til viðræðna við Magma Energy um möguleg kaup sjóðanna á fjórðungshlut í HS Orku, hefur ákveðið að stíga næsta skref í viðræðuferlinu og hefja áreiðanleikakönnun á orkufyrirtækinu.

Fram kemur í tilkynningu að aðilar hafi komið sér saman um útlínur mögulegra viðskipta og helstu skilmála. Verði af fjárfestingu lífeyrissjóðanna í HS Orku sé gert ráð fyrir að greiddir verði um 8,06 milljarðar króna fyrir fjórðungs hlut, sem sé sama verð og seljandi hafi greitt fyrir hlutinn. Þá hafi seljandi ennfremur boðið sjóðunum að auka hlut sinn í HS Orku í 33,4% með kaupum á nýjum hlutum í HS Orku fyrir 10. febrúar 2012. Áætlað kaupverð hinna nýju hluta sé um 4,7 milljarðar króna.

„Aðilar eru sammála um að verði af fjárfestingunni verði lífeyrissjóðunum tryggð rík minnihlutavernd með setu fulltrúa lífeyrissjóðanna í stjórn HS Orku og formlegri aðkomu að öllum meiriháttar ákvörðunum á vegum félagsins. Þeir skilmálar eru háðir því að eignarhlutur kaupenda verði ekki lægri en 22,5% í fyrirtækinu.

Hugsanleg fjárfesting lífeyrissjóðanna á hlut í HS Orku er háð ýmsum frekari skilyrðum, þar á meðal áreiðanleikakönnun, sem nú er hafin, sem og endanlegri ákvörðun stjórna lífeyrissjóðanna. Áætlað er að ákvörðun um fjárfestinguna liggi fyrir í maí,“ segir ennfremur í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert