14,7% hækkanir á 3 árum
Launahækkanir starfsmanna hjá Elkem að meðtöldum breytingum á bónusgreiðslum eru um 14,7% á þriggja ára samningstíma að mati Samtaka atvinnulífsins á nýgerðum kjarasamningi.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að Verkalýðsfélag Akraness hafi fallið frá sínum umframkröfum í gær, hafi viljað fara atvinnuleiðina og verið reiðubúið að ganga frá kjarasamningi sem byggðist á þeim tölum sem rætt hefur verið um í kjaraviðræðunum við ASÍ.
Samið við 5 stéttarfélög
Kjarasamningurinn sem undirritaður var í morgun er svonefndur vinnustaðasamningur vegna starfsmanna í Járnblendiverksmiðjunni og er gerður við 5 verkalýðsfélög. Auk Verkalýðsfélags Akraness (VLFA) sem er með 75% starfsmanna innan sinna vébanda, nær samningurinn til félagsmanna í VR, FIT, Rafiðnaðarsambandinu og Stéttarfélagi Vesturlands.
Í umfjöllun SA um samninginn segir að á fundi með ríkissáttasemjara í gær hafi VLFA fallið frá fyrri kröfum og lagt til að gerður yrði kjarasamningur til þriggja ára með þeim breytingum sem lágu á borðinu í viðræðunum milli ASÍ og SA í síðustu viku og þeim breytingum á bónusum sem SA/Elkem höfðu lagt til í febrúar sl.
„Með öðrum orðum lagði VLFA það til að atvinnuleiðin sem SA hafa unnið að yrði farin gagnvart VLFA, þ.e. stöðugleiki til þriggja ára yrði tryggður á félagssvæði þess. Óskaði félagið eftir því að gengið yrði til undirritunar slíks samnings um morguninn þann 19. apríl og boðaði ríkissáttasemjari til þess fundar. Í framhaldinu var fundað með hinum stéttarfélögunum, farið yfir drög að kjarasamningnum og þau boðuð til fundar á sama tíma og VLFA þann 19. apríl,“ segir í umfjöllun SA.
Bónushámarkið verði 13,5%
Kjarasamningurinn gildir til 31. janúar 2014. Í honum felast almennar launahækkanir sem eru 4,0% á þessu ári, 3,3% árið 2012 og 3,0% árið 2013. Auk þess eru gerðar þrjár breytingar á bónuskerfinu, skv. upplýsingum SA.
„Bónuskerfið er mjög virkt og með því er starfsmönnum umbunað fyrir þann árangur sem næst á þeim sviðum sem bónusarnir taka til. Bónushámarkið var áður samtals 10%. Miðað við 74% árangur skilaði hann 7,4% í launaauka á síðasta samningstímabili. Nú var samið um að hámarkið verði samtals 13,5% og m.v. 74% árangur gæti hann skilað 10,0%. Samtals geta laun starfsmanna hækkað um tæp 8% á þessu ári, að teknu tilliti til desember- og orlofsuppbóta, og um 14,7% á samningstímanum ef sami árangur næst í bónusmálum og síðustu ár. Þessu til viðbótar ákvað fyrirtækið að greiða starfsmönnum sérstaka eingreiðslu sem ekki er hluti kjarasamningsins. Í því samhengi er rétt að hafa í huga að í árslok 2008, í kjölfar fjármálahrunsins hér á landi greiddu önnur stóriðjufyrirtæki en Elkem sambærilega eingreiðslur til starfsmanna sinna,“ segir í umfjöllun SA um samninginn.





































