Segir níðingsverk hafa verið unnið á bók

Eggert Pétursson með bókina.
Eggert Pétursson með bókina.

Listamaðurinn Eggert Pétursson, einn höfunda bókarinnar Flora Islandica, sagði í fréttum Útvarpsins að níðingsverk hafi verið unnið á bókinni á Koddu, sýningu Nýlistasafnsins, sem opnuð var um síðustu helgi.

Hart hefur verið deilt um sýninguna  og einnig um höfundarrétt og sæmdarrétt listamanna.

Verkið Fallegasta bók í heimi  hefur einkum verið gagnrýnt en þar er bókin Flora Islandica smurð með matvælum.  Stjórn safnsins ákvað að taka verkið niður eftir að farið var fram á lögbann vegna þess. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert