Stofna væntanlega þingflokk

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason.
Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason. mbl.is/Kristinn

Atli Gíslason, alþingismaður, sagði í fréttum Stöðvar 2 að meiri líkur væru á því en minni, að þingmennirnir þrír, sem hafa sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna, stofni nýjan þingflokk í vikunni.

Atli sagði að þingmennirnir þrír, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason, auk hans, hefðu rætt málin fyrir helgina og myndu hittast á ný í vikunni.

Þingmennirnir hafa ekki sagt sig úr Vinstrihreyfingunni-grænu framboði þótt þeir hafi sagt sig úr þingflokknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert