Veðrið er að ganga niður
Lægðaveðrið sem barið hefur á landinu undanfarinn sólarhring er nú óðum að ganga niður en áfram verður strekkingur vestanlands, að sögn Veðurstofu Íslands.
„Veðrið er að lækka hægt og bítandi og stormurinn sem slíkur að ganga niður," segir Elín Björk Jónasdóttir vakthafandi veðurfræðingur á spádeild Veðurstofunnar. Enn er þó fremur slæmt veður á norðvestanverðu landinu og mjög hvasst á Steingrímsfjarðarheiði, þar sem vindhraði nær 24 m/sek sem og í Arnkötludal.
Stormurinn gekk yfir í tveimur hvellum, í gærkvöldi og í dag, og segir Elín að það skýrist af því að fyrst gengu fyrri skilin frá lægðinni yfir en svo fengum við snúðinn frá lægðinni, hin svokölluðu afturbeygðu skil. Þetta er svipað og varð í lægðinni fyrir um tveimur vikum þegar blés allhressilega.
„Svo fer lægðin núna aðeins vestur af landinu og snýst þar í smástund og gengur svo yfir landið aftur á morgun og veldur því að það verður hvasst á suðurlandinu," segir Elín. Þá mun lægðin þó hafa grynnkað og verður því líklega ekki eins hvasst og í dag en hinsvegar má búast við leiðindafærð í uppsveitum á suðurlandi og jafnvel í Borgarfirði. „Það verður svo mikill éljagangur í nótt að það gæti hreinlega orðið hvít jörð í fyrramálið. Svo verður vestanstrekkingur í uppsveitum á suður- og vesturlandinu og svo kemur slydda ofan í þetta þannig að færð á vegum gæti orðið varasöm og sumarbústaðafólk sem er á ferðinni á morgun ætti að passa sig," segir Elín.
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Ég reyni að lifa lífinu til fulls
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. mars 2011, Innlent Veikt umboð stjórnlagaráðs
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Herjólfur bíður af sér veðrið í Eyjum
- Sunnudagur, 1. ágúst 2010, Innlent Mikil stemming á Neistaflugi
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Ekið á hross við Kotströnd
- Fimmtudagur, 23. september 2010, Innlent Ekki fyrsti kostur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































