Vilja að Ásmundur Einar segi af sér
Á sameiginlegum fundi svæðisfélaga Vinstri grænna í Grundarfirði og Stykkishólmi um helgina var þess krafist að Ásmundur Einar Daðason segi af sér þingmennsku og hleypi á þing fulltrúa VG sem styðji ríkisstjórnina og sé tilbúinn að vinna að stefnu VG í víðu samhengi.
„Þar sem Ásmundur Einar tók þá ákvörðun að styðja ekki sitjandi ríkisstjórn sem VG er aðili að heldur samþykkja vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins teljum við eðlilegt og sanngjant að Ásmundur Einar víki af þingi," segir í ályktun fundarins.
Segja félögin að ákvörðun Ásmundar Einars hafi verið tekin án alls samráðs og án vitneskju félagsmanna VG á svæðinu enda hafi tengsl Ásmundar við félagsmenn VG í Grundarfirði og Stykkishólmi verið í lágmarki frá kosningum.
„Við þær erfiðu aðstæður sem þjóðin stendur frammi fyrir og til að verja þann góða árangur sem þegar hefur náðst í endurreisn landsins eftir hrun frjálshyggjunnar er mikilvægt að alþingismenn horfi til framtíðar. Eins máls málflutningur alþingismanna er ekki vænlegur til árangurs," segir síðan.
Fram kemur á vef Skessuhorns, að á fundinum var einnig samþykkt ályktun um sjávarútvegsmál þar sem skorað er á stjórnvöld að leggja fram hið fyrsta tillögu að breytingum í sjávarútvegsmálum eins og báðir flokkar ríkisstjórnarinnar voru kosnir til.
Þá samþykkti fundurinn einnig ályktun þar sem vinnubrögðum Samtaka atvinnulífsins í kjaraviðræðum við ASÍ er mótmælt.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Þingmaðurinn stendur vörð um stefnuskrá VG. -
Jón Aðalsteinn Jónsson Við viljum vera í stjórn skítt með málefnin -
Sigurður Jónsson Vinstri grænir vilja reka Ásmund fyrir að fara eftir stefnu ... -
Magnús Þór Jónsson Jæja -
Jóhannes Ragnarsson Hlægilegasta ályktun ársins og jafnframt sú heimskulegasta -
Óðinn Þórisson Stefna SF en ekki VG -
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Ekkert pláss fyrir Sanna Vinstri Græna í "vinstri" ríkisstjórn? -
Guðlaugur Hermannsson Heyr Heyr.... Burt með strákinn. Hann ætlaði að koma í ... -
Tryggvi Marteinsson 24.apríl 2011 - Á Íslandi kjósum við flokka. -
Ómar Bjarki Smárason Okkar efnilegasti stjórnmála maður - bjartasta vonin í íslenskri pólitík
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Ég reyni að lifa lífinu til fulls
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Ásmundur Einar segi af sér
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Funda um úrsögn Ásmundar
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent Spáir flóði vantraustsyfirlýsinga
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Ótrúleg vinnubrögð
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent „Gríðarleg vonbrigði“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































